Goslokanefnd og norska sendiráðið á Íslandi stefna að því að setja upp sýningu á goslokahátíðinni, þar sem rifjuð verður upp ferð ungmenna frá Vestmannaeyjum til Noregs. Eins og margir muna bauð norski Rauði krossinn öllum ungmennum frá Vestmannaeyjum til sumardvaldar í Noregi 1973.