ÍBV tók á móti KR í Borgunarbikar karla í dag. Aðstæður fyrir knattspyrnu voru ekki þær bestu, en völlurinn var mjög blautur og vindur ágerðist eftir því sem leið á leikinn. Aron Spear fékk að líta rauða spjaldið á 34. mínútu og hafði það mikil áhrif á leikinn. KR komst yfir á 73. mínútu og tvö mörk fylgdu í kjölfarið. Ragnar Pétursson braut illa af sér og fékk að líta rauða spjaldið rétt undir lok leiksins.