KFS gerði í dag jafntefli gegn Álftanesi á útivelli 1:1. KFS komst yfir með marki Guðmundar Geirs Jónssonar á 38. mínútu og var staðan 0:1 í hálfleik. Heimamenn jöfnuðu hins vegar metin í síðari hálfleik og undir lok leiksins fékk enski framherjinn James Frayne að líta rauða spjaldið. Frayne er á láni hjá KFS frá ÍBV.