Nú styttist óðfluga í Þjóðhátíð, en átján dagar eru í hátíðina. Dagskráin í ár er mjög fjölbreytt og munu allir finna eitthvað við sitt hæfi. Margir listamenn hafa boðað komu sína á hátíðina í ár m.a Stuðmenn, Helgi Björns, Retro Stefson og Ásgeir Trausti. Afhending miða á hátíðina hefst nú í vikunni en salan hefur gengið vel. Hér fyrir neðan má sjá drög að dagskrá Þjóðhátíðar en hún verður sett föstudaginn 2. ágúst.