Slökkvilið Vestmannaeyja var í tvígang kallað út í gærkvöldi. Annars vegar var um að ræða eld í gasgrilli sem stóð upp við hús en búið var að slökkva eldinn áður en slökkviliðið komst á staðinn. Hins vegar var um að ræða eld í bílhræjum á geymslusvæði Sorpu. Eins og gefur að skilja er mikill eldsmatur á svæðinu en slökkvistarf gekk vel og tók um klukkustund að slökkva eldinn.