KFS lagði Kóngana að velli í dag en liðin áttust við á gervigrasvelli Framara í Safamýrinni. Lokatölur urðu 0:3 KFS í vil en mörkin gerðu þeir Friðrik M’ar Sigurðsson (2) og Björn Axel Guðjónsson. KFS er í þriðja sæti A-riðils fyrir lokaumferðina. Í 4. deild eru þrír riðlar en þrjú efstu liðin í tveimur riðlunum komast í úrslit og tvö úr þeim þriðja.