David James lét ekki sitt eftir liggja í dag þegar leikmenn meistaraflokks karla tóku að sér að landa makríl upp úr uppsjávarskipinu Huginn VE. Skipið kom inn með fullfermi af frystum makríl sem þarf að raða á bretti og hífa upp úr lestinni. Slíkt er ekki fyrir neina aumingja og ekki annað að sjá en að James og félagar hafi tekið vel á því í kaldri lestinni.