Uppsjávarskipið Kap VE, sem er í eigu Vinnslustöðvarinnar, strandaði í hádeginu í dag í Vestmannaeyjahöfn. Skipið var að sigla inn til heimahafnar með fullfermi af makríl en tók niðri fyrir framan Básaskersbryggju, eða þar sem Herjólfur leggst að bryggju. Strandið var reyndar ekki meira en svo að skipið losnaði af sjálfsdáðum stuttu síðar þegar flæddi að og er nú komið að löndunarbryggju Vinnslustöðvarinnar.