Féllu út með minnsta mun
Vestmannaeyjar eru úr leik í spurningaþætti R�?V en í kvöld mætti lið Vestmannaeyja liði Grindavíkur. Lið Vestmannaeyja skipuðu þau Ágúst �?rn Gíslason, Jórunn Einarsdóttir og Sveinn Waage. Keppnin var spennandi allan tímann og spennan náði hámarki í lokin. Fyrir síðustu umferðina voru Vestmannaeyjar 14 stigum yfir, 64:50. Eyjaliðið gerði það eina rétta í stöðunni, valdi að taka fimm stiga spurningu, sem hefði átt að vera auðveld spurning. Hún var hins vegar skrambi þung og svarið kom ekki. Grindavík þurfti því að taka þyngstu spurninguna, fimmtán stiga spurningu. �?au voru ekki með svarið á hreinu en giskuðu, svöruðu rétt og unnu 65:64. �?au Ágúst �?rn, Jórunn og Sveinn geta þó borið höfuðið hátt enda stóðu þau sig vel og veittu Grindavík verðuga keppni.

Nýjustu fréttir

Bleik messa í Landakirkju
Seinni ferðir Herjólfs falla niður vegna veðurs og sjólags
„Vestmannaeyjar eru hluti af Suðurkjördæmi alla daga ársins“
Locomotive Breath flutt til heiðurs Jóa Listó
Áhyggjur af fjölda barna sem bíða eftir greiningu
Metmæting á kótilettukvöldi í Höllinni
Aron Lucas Vokes með slitið krossband
Agnar Smári Jónsson með stórsýningu er hann sneri aftur á völlinn í Eyjum í dag
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.