Svekkjandi tap á heimavelli
ÍBV tapaði í dag fyrir FH með einu marki 23:24. Leikurinn var nokkuð kaflaskiptur, Eyjamenn voru sterkari lengst af í fyrri hálfleik en það voru þó FH-ingar sem leiddu í hálfleik 10:11 eftir að hafa skorað fjögur síðustu mörk fyrri hálfleiks. Eyjamenn náðu hins vegar aftur forystunni í seinni hálfleik en það stóð ekki lengi yfir og FH-ingar voru með undirtökin lengstum í seinni hálfleik en náðu þó aldrei meira en tveggja marka forystu. Undir lokin var jafnt á öllum tölum síðustu tíu mínúturnar, 19:19, 20:20 og allt þar til staðan var 23:23 og tæp mínúta til leiksloka. FH-ingar voru með boltann og gátu tryggt sér sigurinn í síðustu sókninni en Eyjamenn vörðust vel, fiskuðu ruðning á leikmann FH og komust í sókn þegar um hálf mínúta var eftir. En afar ótímabært skot varð til þess að aftur fengu FH-ingar tækifæri þegar fimmtán sekúndur voru eftir en flestir voru sammála um að brotið hafi verið á sóknarmanni ÍBV En þessar sekúndur dugðu FH-ingum því þremur sekúndum fyrir leikslok skoraði Sigurður Ágústsson sigurmarkið úr þröngu færi af línunni.

Nýjustu fréttir

Bleik messa í Landakirkju
Seinni ferðir Herjólfs falla niður vegna veðurs og sjólags
„Vestmannaeyjar eru hluti af Suðurkjördæmi alla daga ársins“
Locomotive Breath flutt til heiðurs Jóa Listó
Áhyggjur af fjölda barna sem bíða eftir greiningu
Metmæting á kótilettukvöldi í Höllinni
Aron Lucas Vokes með slitið krossband
Agnar Smári Jónsson með stórsýningu er hann sneri aftur á völlinn í Eyjum í dag
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.