Komið að hinni árlegu bólusetningu
Nú er komið að hinni árlegu bólusetningu gegn inflúensu. Sóttvarnarlæknir mælir með eftirtaldir hópa láti bólusetja sig gegn inflúensu. Allir einstaklingar 60 ára og eldri. �?ll börn og fullorðnir sem þjást af langvinnum hjarta-, lungna-, nýrna- og lifrarsjúkdómum, sykursýki, illkynja sjúkdómum og öðrum ónæmisbælandi sjúkdómum. Heilbrigðisstarfsmenn sem annast einstaklinga í áhættuhópum sem taldir eru upp hér að ofan. �?ungaðar konur. Vakin er athygli á því að ofangreindir áhættuhópar eiga rétt á bóluefninu sér að kostnaðarlausu en borga komugjald á heilsugæslustöð. Inflúensan er enn ekki farin að láta á sér kræla hér á landi en ávallt má búast við henni í kringum áramótin. Samkvæmt upplýsingum frá sóttvarnalækni veitir bólusetning gegn inflúensu allt að 60-70% vörn gegn sjúkdómnum. Jafnvel þótt bólusettur einstaklingur fái inflúensu eru allar líkur á því að sjúkdómurinn verði vægari en ef hann væri óbólusettur.
Lungnabólugubólusetning (pneumococcar
Mælt er með að einstaklingar 60 ára og eldri og einnig einstakling með langvinna sjúkdóma láti bólusetja svo kallaðri lungnabólubólusetningu, en þá er bólusett við bakteríu sem er algegn orsök sýkinga í öndunarfærum. Sú bólusetning er almennt endurtekin á 10 ára fresti en ákveðnum sjúklingahópum er ráðlagt að endurtaka bólusetninguna á 5 ára fresti.
Hvenær er bólusett.
Mánudaga, miðvikudaga og föstudaga kl 11 �?? 12. á heilsugæslunni 1. hæð .
hsve.is

Nýjustu fréttir

Bleik messa í Landakirkju
Seinni ferðir Herjólfs falla niður vegna veðurs og sjólags
„Vestmannaeyjar eru hluti af Suðurkjördæmi alla daga ársins“
Locomotive Breath flutt til heiðurs Jóa Listó
Áhyggjur af fjölda barna sem bíða eftir greiningu
Metmæting á kótilettukvöldi í Höllinni
Aron Lucas Vokes með slitið krossband
Agnar Smári Jónsson með stórsýningu er hann sneri aftur á völlinn í Eyjum í dag
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.