Sóknarmaður til ÍBV
Jonathan Glenn skrifaði í dag undir eins árs samning við ÍBV. Jonathan kemur frá Trínidad og Tóbagó, eins og kantmaðurinn Dominic Adams, sem samdi í gær til tveggja ára við ÍBV. Jonathan Glenn er hins vegar sóknarmaður en báðir voru þeir til reynslu hjá félaginu á dögunum. �??Jonathan lék með St. Leo háskólanum í Florida og er 5. markahæsti leikmaður í sögu skólans þar sem hann skoraði 41 mark í 57 leikjum og lagði upp 16 mörk. Eftir útskrift hefur Jonathan leikið með Vermont Voltage í PDL deildinni og Jacksonville United í NPSL deildinni í Bandaríkjunum. ÍBV bauð Jonathan samning eftir að hann æfði og lék með félaginu gegn Haukum í Fótbolti.net mótinu og í vináttuleik gegn Val fyrir skömmu síðan. ÍBV býður Jonathan velkominn til félagsins og væntir mikils af honum á komandi keppnistímabili,�?? segir í tilkynningu frá ÍBV.

Nýjustu fréttir

ESB-aðild gæti fært störf og verðmæti úr landi að mati SFS
Eyjakonur geta endurheimt þriðja sætið
Færri íbúðir og minna byggingarmagn við Strandveg 44
Bergey með fínasta karfa
Tilkynntur til barnaverndar eftir mynd af feðgum á veiðum
Norconsult metur fýsileika og kostnað við Eyjagöng
Fjaran afhjúpar gamla leyndardóma
Skólastarf hefst á ný í GRV
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.