Sameina hagsmuni allra
�??�?g held að það láti nærri að með þessu sé verið að leggja grunn að stærri uppbyggingu á hafnarsvæðinu en við höfum séð í áratugi,�?? sagði Elliði Vignisson, bæjarstjóri um þá ákvörðun bæjaryfirvalda að gera samkomulag við Vinnslustöð Vestmannaeyja og Ísfélagið og leysa þannig úr ágreiningi fyrirtækjanna tveggja. �??Til að gera það mögulegt munum við útbúa eitt deiliskipulag fyrir hafnarsvæði H-1 sem nær þá frá Skanssvæði í austri að Friðarhafnarskýli í vestri. Svona almennt séð eru stærstu breytingarnar fólgnar í því sem fyrst og fremst snýr að fyrirtækjum með starfsemi við Friðarhörn. Áfram verður haldið þróun á botni Friðarhafnar fyrir hafnsækna þjónustu. Stefnt er að því að fara með tengigötu frá Strandvegi út á Eiði vestur fyrir það grassvæði sem nú geymir skrúfuna af �?ór og aðskilja sem mest almenna umferð og atvinnustarfsemi svo sem gámaflutninga og fl.. Á þessum tiltekna reiti innst í botninum verður byggingalóð sem hefur verið úthlutað til Godthaab í Nöf, auk bílastæða og fl. �?ar stefna þeir að því að reisa hús tengt sinni starsemi. Á reitnum vestan og norðan Ísfélagsins stefnir Ísfélagið að því að byggja frystigeymslu og áfram verður haldið með mótorhúsið við Garðaveg. Til að mæta þessum aukna umsvifum verður hafnarkanntur sunnanmegin í pyttinum færður allt að 20 metrum til norðurs og þar verður til mikilvægt athafnarsvæði fyrir alla aðila á þessu svæði. Vinnslutöðin stefnir að mikilli uppbyggingu hjá sér og fá meðal annars úthlutað Hafnargötunni til síns athafnarsvæðis. �?á stefna þeir að byggingu á mjölgeymslu norðan við nýju tankana við Strandveg 82 og fl. �?ti á Eiði er síðan verið að undirbúa byggingar á amk. þremur lóðum norðan við upptökumannvirki hafnarinnar og Skipalyftunar hf. �?á er fiskverkunin Langa að stækka verulega hjá sér.�??
Elliði segir að breytingarnar sem snúi að hinum almenna Eyjamanni tengist frekar byggingum félaganna í miðbænum. �??�?annig mun Ísfélagið fella húsið við Strandveg 26 og VSV austurhús Fiskiðjunnar. Vestmannaeyjabær verður eigandi þessara lóða og mun nú tafarlaust hefja undirbúning að skipulagi á því svæði. Vonir okkar standa til að með þessu fari saman, hönd í hönd, hagsmunir hafnsækinnar starfsemi og áframhaldandi uppbygging miðbæjar. Eins og kynnt hefur verið stefnir �?ekkingarsetur Vestmannaeyja að því að koma upp aðstöðu í Vigtarhúsinu og aðliggjandi húsum. Með breyttri nýtingu á reitnum sem nú geymir Ísfélagshúsið og austurhús Fiskiðju tengist miðbærinn enn betur við Vigtartorgið og allt niður að dyrum samfélagsins við Herjólf.�??
Hafró frekar í skóli af Heimkletti en Hörpu
�??Hvað verður um sjálft Fiskiðjuhúsið hefur enn ekki verið ákveðið. Vestmannaeyjabær hefur látið kanna ástand þess og verkfræðiúttekt sýnir að það er í prýðilegu ástandi hvað steypu og fleira varðar. Með tíð og tíma verður húsinu vonandi fundinn alvöru sess í samfélaginu. Ef til vill mun það nýtast til að auðvelda ríkisstjórn landsins að uppfylla þau ákvæði í stjórnarsáttmálanum þar sem getið er um eindregin vilja til að flytja starfsemi ríkisins út á land. �?g á til að mynda erfitt með að sjá fyrir mér heppilegri stað fyrir starfsemi Hafrannsóknarstofnunar Íslands sem þar með stæði í skjóli af Heimakletti frekar en Hörpunni. Enn er þó of snemmt að segja til um slíkt.
Í þessu eins og svo mörgu er fyrst að vilja og þá er restin bara tækni. Nú liggur sem sagt fyrir eindregin vilji þeirra aðila sem að koma um hvernig horfa beri til framtíðar í skipulagsmálum þessa svæðis. �?að verður leiðarljósið í skipulagsvinnunni. Næstu skref er skipulagið sjálft. Eins og endranær verður rík áhersla lögð á samráð við aðila innanbæjar sem og aðra sem hagsmuna hafa af breytingu á skipulaginu svo sem Siglingastofnun og fleiri.�??

Nýjustu fréttir

MAST, Fiskistofa og Verðlagsstofa skiptaverðs sameinuð
Það þarf meira en hús til að reka skóla
Grjótleit komin á fullt á Haugasvæðinu
Vigga og Guðni hafa heimsótt 86 lönd og eru hvergi nærri hætt
Sólhlíð, Áshamar og Stakkagerðistún
Fyrstu kjarnasýnin komin upp á Landeyjasandi
Hélt að verið væri að gera grín í sér
Útlaginn gefur út sitt fyrsta lag: „Þetta er bara byrjunin“
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.