Beðið frétta af loðnuveiðum
Lítið hefur gengið í loðnuveiðum fyrir austan land en í vikunni fannst loðna sunnan við landið, í Meðallandsbugt úti fyrir Skeiðarársandi. �?egar Eyjafréttir slógu á þráðinn til �?lafs Einarssonar, skipstjóra á Heimaey VE í gær, var reyndar lítið að frétta.
�??Við erum nýkomnir á miðin og í okkar fyrsta túr síðan í byrjun janúar. �?á vorum við komnir með um 1800 tonn en síðan fokkaðist þetta eitthvað upp þarna fyrir austan. Við höfum ekkert kastað í dag og mér sýnist að við gerum það ekki þar sem komið er leiðindaveður og spáð stormi fram eftir degi hér í bugtinni. En mér skilst að það hafi verið ágætis veiði hér og loðnan litið vel út. En hvort það sé kominn einhver kraftur í þetta er erfitt að segja til um. �?tli það sé ekki best að kasta áður en ég svara því. �?að er einhver loðna hérna,�?? sagði �?lafur.
Hæfilega bjartsýnn á meiri kvóta
Eyþór Harðarson, útgerðarstjóri hjá Ísfélaginu, sagði fyrirtækið hafa haft 17 þúsund tonna upphafskvóta. �??�?að eru í kringum 14 þúsund tonn eftir af honum. Álsey VE er í fyrstu löndun úr þessari göngu sunnan við land, er með um 700 tonn sem allt verður unnið til manneldis. Auðvitað vona allir að veiðar fari að glæðast og bætt verði við kvótann en sjálfur er ég hæfilega bjartsýnn á það.�??
VSV í startholunum
Sindri Viðarsson, hjá Vinnslustöð-inni, sagði að nú væri beðið eftir fyrstu loðnunni hjá fyrirtækinu. �??Við erum með 8.500 tonna upphafskvóta og höfum ekkert veitt. Kap fór í sinn fyrsta túr í gærkvöldi en mér skilst að loðnan sem menn hafa verið að veiða þarna sé stór og góð. Við reiknum með að frysta það sem fæst fyrir Japans- og Rússlandsmarkað en svo má reikna með að hrognataka hefjist eftir 10 til 14 daga.�??
Huginn að klára síldina
Huginn VE er í sínum síðasta síld- artúr en skipið var statt rétt við Vestmannaeyjar að ljúka frystingu þegar blaðamaður heyrði í Guðmundi Hugin Guðmundssyni, skipstjóra. �??Við höfum ekkert verið í loðnunni, erum að klára síldarkvótann. Við eigum reyndar enn einhvern kvóta fyrir meðafla í makrílnum. Annars hefur þetta gengið ágætlega hjá okkur og við komum væntanlega inn í kvöld í löndun. Í kjölfarið förum við svo að huga að loðnunni. Við erum bara með svo lítinn loðnukvóta að við höfum ekkert verið að stressa okkur of mikið á henni. Við erum með eitt og hálft prósent af heildarkvótanum og það dugir fyrir þrjá túra eða svo ef við frystum loðnuna. Annars þurfum við að setjast aðeins yfir þetta og sjá hvernig við náum mestri hagkvæmni úr þeim litla kvóta sem við erum með.�??

Nýjustu fréttir

MAST, Fiskistofa og Verðlagsstofa skiptaverðs sameinuð
Það þarf meira en hús til að reka skóla
Grjótleit komin á fullt á Haugasvæðinu
Vigga og Guðni hafa heimsótt 86 lönd og eru hvergi nærri hætt
Sólhlíð, Áshamar og Stakkagerðistún
Fyrstu kjarnasýnin komin upp á Landeyjasandi
Hélt að verið væri að gera grín í sér
Útlaginn gefur út sitt fyrsta lag: „Þetta er bara byrjunin“
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.