Eyjapeyjarnir hlakka til að kljást á vellinum
Í kvöld klukkan 19:00 tekur ÍBV á móti Val í hörkuleik Olísdeildarinnar en leikurinn fer fram í stóra sal Íþróttamiðstöðvarinnar. Mikil spenna er í deildinni, fyrir utan að Haukar eru nokkuð afgerandi í efsta sæti en þar fyrir neðan eru fimm lið nánast í einum hnapp. ÍBV og Valur eru þar á meðal en þessi tvö lið sitja í öðru og þriðja sæti deildarinnar fyrir kvöldið. Í liði Vals er að finna Eyjapeyjann Vigni Stefánsson, sem áður lék með ÍBV en er nú á sínu öðru ári með Valsliðinu en Theodór Sigurbjörnsson, markahæsti leikmaður ÍBV fær það verkefni að kljást við Vigni, svo lengi sem þeir spili báðir í kvöld.
�??Mér líst mjög vel á að mæta þeim,�?? sagði Theodór í samtali við Eyjafréttir. �??�?etta er hörkulið sem við erum að fara að mæta en við eigum harma að hefna, ekki bara eftir að hafa tapað fyrri leik liðanna heldur líka eftir bikarleikinn gegn Aftureldingu. �?að var rosalega gaman að spila bikarleikinn en ógeðslega leiðinlegt hvernig hann endaði. Við vorum sjálfum okkur verstir, vorum ekki nógu klókir, fengum t.d. of margar brottvísanir. Við ætlum hins vegar að bæta upp fyrir þetta tap með því að vinna Val á okkar heimavelli. Við þekkjum vel að mæta liði í þriðja sæti, þannig var það þegar við spiluðum við Fram og því þekkjum við þessa stöðu. �?etta er mjög þéttur pakki í deildinni og lítið þarf útaf að bregða til að lið fari niður töfluna. En ég get lofað því að þetta verður djöfull góður leikur.�??
Hvernig líst þér á að mæta Eyjamanninum Vigni Stefánssyni?
�??�?að verður bara gaman. Vonandi fær Viggi að spila svolítið en við erum góðir vinir og það er gaman að spila á móti honum.�??
Teddi segir að áhorfendur megi ekki láta sitt eftir liggja. �??�?g viðurkenni alveg að ég var svolítið svekktur með mætinguna í Mosfellsbæ enda fullt af Eyjamönnum í bænum. En vonandi svara áhorfendur kallinu og bæta fyrir það. Við ætlum að bæta fyrir tapið og gerum það ef allir leggjast á eitt. Stuðningurinn á pöllunum skilar sér og gefur manni alltaf auka kraft inni á vellinum.�??
Gaman að mæta til Eyja
Títtnefndur Vignir er spenntur fyrir því að mæta aftur til Eyja og leika gegn sínu gamla félagi. �??�?að er bara verst að ÍBV spilar í nýja salnum. �?g var farinn að hlakka til að mæta á parketið og hlusta á öskrin í Lóu, Eddu og Stebba Jónasar. Vonandi verður bara stemmning í nýja salnum og þau láta væntanlega vel í sér heyra,�?? sagði Vignir í samtali við Eyjafréttir.
Hvernig var að spila gegn ÍBV þegar liðin mættust á Hlíðarenda?
�??�?að var sérstakt í byrjun en svo var það fljótt að gleymast þegar leikklukkan fór af stað. �?að verður væntanlega eins í Eyjum, sérstakt en svo fer maður bara að einbeita sér að leiknum.�??
Vignir reiknar með hörkuleik tveggja jafnra liða. �??Bæði lið töpuðu í bikarnum og mæta því eins og særð dýr til leiks. �?etta er þéttur pakki um miðja deild og hlutirnir geta verið fljótir að breytast. �?að verða nokkrir fjögurra stiga leikir í þriðju umferðinni, það er á hreinu.�??
Ertu sáttur við þína spilamennsku í vetur?
�??Já og nei. �?g var kominn á gott ról en meiddist svo um mánaðamótin október-nóvember. �?g hef lítið spilað í fyrstu tveimur leikjunum en er orðinn góður af meiðslunum. Vonandi fæ ég tækifærið í Eyjum,�?? sagði Vignir sem var greinilega fullur tilhlökkunar.
Eins og áður sagði hefst leikur liðanna klukkan 19:00.

Nýjustu fréttir

MAST, Fiskistofa og Verðlagsstofa skiptaverðs sameinuð
Það þarf meira en hús til að reka skóla
Grjótleit komin á fullt á Haugasvæðinu
Vigga og Guðni hafa heimsótt 86 lönd og eru hvergi nærri hætt
Sólhlíð, Áshamar og Stakkagerðistún
Fyrstu kjarnasýnin komin upp á Landeyjasandi
Hélt að verið væri að gera grín í sér
Útlaginn gefur út sitt fyrsta lag: „Þetta er bara byrjunin“
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.