Eyjamenn niðurlægðir á heimavelli
Valsmenn fóru vægast sagt illa með leikmenn ÍBV í kvöld þegar liðin áttust við í toppslag Olísdeildar karla í handbolta. Fyrirfram var búist við hörkuleik en í raun varð leikurinn aldrei spennandi. Valsmenn gerðu svo til út um leikinn strax á fyrstu tuttugu mínútunum enda skoraði ÍBV aðeins fjögur mörk á þeim kafla leiksins á móti tólf mörkum gestanna. �?að má því kannski segja að Eyjamenn hafi sjálfir gert út um leikinn með arfaslökum leik, bæði í vörn og sókn. �?að versta var, að það var eins og sumir leikmenn væru hreinlega ekki með í leiknum. Staðan í hálfleik var 8:17. Eyjamenn bitu aðeins frá sér í seinni hálfleik, náðu að minnka muninn niður í fjögur mörk, 16:20 en létu reka sig af velli í kjölfarið fyrir klaufalegt brot og mótmæli í kjölfarið og Valsmenn gengu á lagið. Lokatölur urðu 21:31 og Valsmenn því komnir upp fyrir ÍBV í annað sætið en ÍBV er í því þriðja.
Leikmenn ÍBV vilja sjálfsagt gleyma síðustu tveimur leikjum sínum sem allra fyrst en vikan hefur verið erfið fyrir Eyjamenn. Fyrst féll ÍBV úr leik gegn 1. deildarliði Aftureldingar á sunnudaginn og í kvöld ætluðu leikmenn ÍBV að rétta sinn hlut gegn Val á heimavelli. En það er óhætt að segja að hlutirnir hafi ekki farið eins og rætt var um, og í raun langt frá því Valsmenn niðurlægðu í raun ÍBV í fyrri hálfleik fyrir framan tæplega 500 áhorfendur á leiknum. Sóknarleikurinn var hreint hörmung, varnarleikurinn lélegur og markvarslan svo til engin. Og allt þetta fyrir framan fullt hús af stuðningsmönnum ÍBV. Verra gat það varla verið.
Frábærir stuðningsmenn
�?að var þó tvennt sem má taka jákvætt út úr þessum leik. Annars vegar er það viðspyrna Eyjamanna í seinni hálfleik og með smá kænsku, hefðu leikmenn getað nýtt sér betur meðbyrinn enda var farið að fara um Valsmenn þegar munurinn var kominn niður í fjögur mörk í seinni hálfleik. �?að var góður leikkafli. En það jákvæðasta við kvöldið er frammistaða áhorfenda. Tæplega 500 manns voru á leiknum og létu vel í sér heyra, þrátt fyrir það sem leikmenn höfðu fram að fær á vellinum. Ekki minnkaði stuðningurinn þegar leikmenn fóru loks að láta finna fyrir sér og allir sátu sem fastast til leiksloka. �?á var öflug stuðningsmannasveit, ungir Eyjapeyjar sem stýrðu stuðningnum með trommum og skemmtilegum söngvum. Sannkallaðir Hvítir riddarar. Vonandi verður stuðningurinn eins á sunnudaginn þegar ÍBV tekur á móti Akureyri.
Enn möguleiki á öðru sætinu
Já leikmenn ÍBV fá tækifæri til að rétta sinn hlut í annað sinn á einni viku á sunnudaginn þegar Eyjamenn taka á móti Akureyri í frestuðum leik frá því fyrir áramót. Með sigri getur ÍBV komist aftur upp í annað sætið, sem skiptir máli fyrir niðuröðun leikja í þeirri þriðju. En leikmenn ÍBV verða að sýna talsvert betri leik en í kvöld því þótt Akureyri er í næst neðsta sæti, þá verður leikurinn gífurlega erfiður, svo ekki sé talað um ef Eyjaliðið ætlar að spila eitthvað í líkingu við það sem það gerði í kvöld. En ef allir leggjast á eitt, stuðningsmenn og leikmenn þá næst sigur. Stuðningsmenn stóðu við sitt í kvöld og gott betur. Nú er boltinn hjá leikmönnum ÍBV. Hvað ætla þeir að gera á sunnudaginn?
Mörk ÍBV: Agnar Smári Jónsson 6, Róbert Aron Hostert 4, Magnús Stefánsson 3, Sindri Haraldsson 3, Grétar Eyþórsson 2, Theodór Sigurbjörnsson 2/1, Svavar Grétarsson 1.
Varin skot: Kolbeinn A. Ingibjargarson 10/1, Henrik Eidsvaag 3.

Nýjustu fréttir

MAST, Fiskistofa og Verðlagsstofa skiptaverðs sameinuð
Það þarf meira en hús til að reka skóla
Grjótleit komin á fullt á Haugasvæðinu
Vigga og Guðni hafa heimsótt 86 lönd og eru hvergi nærri hætt
Sólhlíð, Áshamar og Stakkagerðistún
Fyrstu kjarnasýnin komin upp á Landeyjasandi
Hélt að verið væri að gera grín í sér
Útlaginn gefur út sitt fyrsta lag: „Þetta er bara byrjunin“
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.