Kolbrún send heim úr The Biggest Loser Ísland í gær
Vestmannaeyjamærin Kolbrún Jónsdóttir var send heim í fjórða þætti The Biggest Loser Ísland sem sýndur var á SkjáEinum í gærkvöldi. �?á endaði Kolbrún í neðsta sæti ásamt �?nnu Lísu Finnbogadóttur og þurftu hinir keppendurnir að velja á milli hvor þeirra færi heim. Í meðfylgjandi myndbandi má sjá brot úr þættinum í gær þegar Kolbrún er send heim og viðtal við Kolbrúnu eftir að niðurstaðan lá fyrir.
Alls missti Kolbrún 10,3 kg og 8,6% af upphaflegri líkamsþyngd sinni á þessum fjórum vikum sem hún dvaldi á Ásbrú og vann hug og hjörtu fólks með skemmtilegu fasi og húmor. Hennar verður sárt saknað úr sjónvarpsþáttunum en keppninni er þó hvergi nærri lokið hjá Kolbrúnu því allir keppendur eru enn í stífu prógrammi fyrir lokaþáttinn sem sýndur verður í byrjun apríl. �?á mæta allir keppendur aftur til leiks og eru mældir. �?á kemur í ljós heildarárangur keppenda. Við sendum Kolbrúnu baráttukveðjur í átakinu og hlökkum til að sjá árangurinn í apríl.

Nýjustu fréttir

Metmæting á kótilettukvöldi í Höllinni
Aron Lucas Vokes með slitið krossband
Agnar Smári Jónsson með stórsýningu er hann sneri aftur á völlinn í Eyjum í dag
Sandra tryggði ÍBV sigur í blálokin gegn Fram
Bleikur leikur hjá Eyjakonum – allur aðgangseyrir til Krabbavarnar
Gul viðvörun á Suðurlandi – hviður geta farið yfir 30 m/s
Arnór maður leiksins í sigri Karlskrona
Sálmastund með þér
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.