Eyjamenn náðu öðru sætinu á ný
Eyjamenn skutust aftur upp í annað sætið með sigri á Akureyri í frestuðum leik frá því fyrir áramót. Liðin áttust við í Eyjum í dag og hafði ÍBV þriggja marka sigur, 30:27. Leikmenn og stuðningsmenn fögnuðu sigrinum vel í leikslok enda mikilvægt að ná aftur öðru sætinu því með því fær ÍBV fjóra heimaleiki í þriðju umferð Íslandsmótsins. Fyrsti leikurinn í þriðju umferð er einmitt á laugardaginn, þegar ÍBV mætir Akureyri í Eyjum.
Leikurinn í dag var afar fjörugur, mikill hraði var í leiknum, 57 mörk litu dagsins ljós og leikmenn beggja liða gerðu fullt af mistökum. Eyjamenn voru ávallt skrefinu á undan, ef undan er skilinn fyrri hluti fyrri hálfleiks en í hálfleik var staðan 16:14. Akureyringar voru þó aldrei langt undan og jöfnuðu 16:16 í upphafi síðari hálfleiks og svo aftur 18:18. En þá tóku Eyjamenn góðan kipp og breyttu stöðunni í 23:18. �?etta forskot skipti miklu máli á lokakaflanum þegar Akureyringar gerðu harða atlögu að sigri ÍBV, gestirnir minnkuðu muninn niður í þrjú mörk en lengra komust þeir ekki, þótt þeir fengu tækifæri til þess.
Grétar �?ór Eyþórsson var frábæra í liði ÍBV en hann skoraði 9 mörk í leiknum og spilaði eflaust sinn besta leik fyrir félagið frá upphafi. Róbert Aron Hostert reyndist einnig mikilvægur á lokakaflanum en ekki má gleyma stuðningsmönnum sem voru frábærir í dag, eins og í leiknum gegn Val. Stuðningsmannasveitin setur skemmtilegan svip á heimaleikina, enda eru strákarnir fyrst og fremst í því að skemmta sér og halda uppi stemmningunni með skemmtilegum söngvum. Ef fram heldur sem horfir, er ÍBV komið með alvöru ljónagryfju sem gæti reynst þungt á metunum á lokasprettinum.
Mörk ÍBV: Grétar Eyþórsson 9, Róbert Aron Hostert 7, Agnar Smári Jónsson 4, Theodór Sigurbjörnsson 4/2, Andri Heimir Friðriksson 2, Magnús Stefánsson 2, Guðni Ingvarsson 1, Sindri Haraldsson 1.
Varin skot: Kolbeinn A. Ingibjargarson 7, Henrik Eidsvaag 7.

Nýjustu fréttir

MAST, Fiskistofa og Verðlagsstofa skiptaverðs sameinuð
Það þarf meira en hús til að reka skóla
Grjótleit komin á fullt á Haugasvæðinu
Vigga og Guðni hafa heimsótt 86 lönd og eru hvergi nærri hætt
Sólhlíð, Áshamar og Stakkagerðistún
Fyrstu kjarnasýnin komin upp á Landeyjasandi
Hélt að verið væri að gera grín í sér
Útlaginn gefur út sitt fyrsta lag: „Þetta er bara byrjunin“
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.