Mikið skötuát hefur fylgt Þorláksmessu að vetri og eru glæsilegar skötuveislur um allt land þar sem gríðarlegur fjöldi fólks tekur þátt í þessum góða sið sem undanfara jólahalds.
Skötuát er nú byrjað einnig á Þorláksmessu á sumri og má rekja upphaf þess til Hrútavina á Suðurlandi sem byrjuðu með skötuveislur í Lista- og menningarverstöðinni á Stokkseyri fyrir fjórum árum.