�?jóðhátíðarnefnd mun í ár leggja sérstaka áherslu á forvarnir gegn öllu ofbeldi. Föstudagskvöldið 29. júlí nk. kl. 22:15 munu hljómsveitir, gestir og gæsla vera með sameiginlega athöfn til að sýna með táknrænum hætti að ofbeldi á �?jóðhátíð verði ekki liðið. �?essi athöfn og starfshópur sem skipaður mun verða í kjölfar hátíðarinnar verður vonandi vísir að hugarfarsbreytingu gagnvart kynferðisofbeldi og öðru ofbeldi. �?flug gæsla skipuð fagfólki Á undanförnum árum hafa verið settar upp 12 eftirlitsmyndavélar á svæðinu og í ár verða settar upp fimm myndavélar til viðbótar til að efla öryggi gesta. Innan gæslusveitar hátíðarinnar starfa um 20 menntaðir lögreglu- og sjúkraflutningamenn. �?egar álagið er hvað mest á svæðinu eru um 100 manns í gæslu. Í um 200 metra fjarlægð frá Brekkusviði er sjúkraskýli þar sem læknisþjónusta er veitt frá 20:00 til 8:00 alla hátíðardagana, þar starfar læknir og þrír hjúkrunarfræðingar. Á svæðinu eru tveir sjúkrabílar til reiðu frá 20:00 til 8:00 og einnig er starfandi áfallateymi í Herjólfsdal, teymið starfar á vegum �?jóðhátíðarnefndar og er því stýrt af fagmenntuðu starfsfólki. Bleiki fílinn Forvarnarhópurinn Bleiki fílinn sem stofnaður var árið 2012 mun vera einkar áberandi í ár. Sá hópur hefur það að markmiði að fræða þjóðhátíðargesti um samþykkt kynlíf. Átakið hefur verið mjög sýnilegt á hátíðarsvæðinu frá stofnun og hafa til að myndað margar hljómsveitir og listamenn komið fram merkt átakinu í Dalnum.
�?jóðhátíðarnefnd hefur sett upp vegvísi inn á svæðinu sem sýnir hvar hægt er að leita sér aðstoðar ef eitthvað kemur upp á.
�?jóðhátíðarnefnd leggur áherslu á að ofbeldi er aldrei liðið.
�?jóðhátíðarnefnd