�?flug gæsla eins og alltaf - En bætt um betur
�?jóðhátíðarnefnd mun í ár leggja sérstaka áherslu á forvarnir gegn öllu ofbeldi. Föstudagskvöldið 29. júlí nk. kl. 22:15 munu hljómsveitir, gestir og gæsla vera með sameiginlega athöfn til að sýna með táknrænum hætti að ofbeldi á �?jóðhátíð verði ekki liðið. �?essi athöfn og starfshópur sem skipaður mun verða í kjölfar hátíðarinnar verður vonandi vísir að hugarfarsbreytingu gagnvart kynferðisofbeldi og öðru ofbeldi.
�?flug gæsla skipuð fagfólki Á undanförnum árum hafa verið settar upp 12 eftirlitsmyndavélar á svæðinu og í ár verða settar upp fimm myndavélar til viðbótar til að efla öryggi gesta. Innan gæslusveitar hátíðarinnar starfa um 20 menntaðir lögreglu- og sjúkraflutningamenn. �?egar álagið er hvað mest á svæðinu eru um 100 manns í gæslu. Í um 200 metra fjarlægð frá Brekkusviði er sjúkraskýli þar sem læknisþjónusta er veitt frá 20:00 til 8:00 alla hátíðardagana, þar starfar læknir og þrír hjúkrunarfræðingar. Á svæðinu eru tveir sjúkrabílar til reiðu frá 20:00 til 8:00 og einnig er starfandi áfallateymi í Herjólfsdal, teymið starfar á vegum �?jóðhátíðarnefndar og er því stýrt af fagmenntuðu starfsfólki.
Bleiki fílinn Forvarnarhópurinn Bleiki fílinn sem stofnaður var árið 2012 mun vera einkar áberandi í ár. Sá hópur hefur það að markmiði að fræða þjóðhátíðargesti um samþykkt kynlíf. Átakið hefur verið mjög sýnilegt á hátíðarsvæðinu frá stofnun og hafa til að myndað margar hljómsveitir og listamenn komið fram merkt átakinu í Dalnum.
�?jóðhátíðarnefnd hefur sett upp vegvísi inn á svæðinu sem sýnir hvar hægt er að leita sér aðstoðar ef eitthvað kemur upp á.
�?jóðhátíðarnefnd leggur áherslu á að ofbeldi er aldrei liðið.
�?jóðhátíðarnefnd

Nýjustu fréttir

Norconsult metur fýsileika og kostnað við Eyjagöng
Fjaran afhjúpar gamla leyndardóma
Skólastarf hefst á ný í GRV
Höfum kjark til að horfa á staðreyndir
Sindri Georgsson – Fátt sem toppar utanvegahlaup í Eyjum
Fjórði stærsti júlímánuður í sögu Herjólfs
Karlasveit GV leikur í deild þeirra bestu að ári
Mikið siglt og víða leitað eftir afla
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.