Funda vegna frekari tjónabóta
vatn_logn_08_op
Vatnslögnin milli lands og Eyja skemmdist á síðasta ári og enn er ekki útséð með viðgerð á henni. Eyjar.net/Óskar Pétur Friðriksson

Tjón á neysluvatnslögn var til umfjöllunar á fundi bæjarráðs Vestmannaeyja á föstudaginn var.

Fram kemur í fundargerð að vátryggingafélag útgerðarinnar hafi viðurkennt bótaskyldu vegna tjónsins á neysluvatnslögninni og eiga bætur að koma til greiðslu á árinu 2024. Ljóst er að tjónið er langt umfram hámark vátryggingabóta og munu fulltrúar Vestmannaeyjabæjar og HS Veitna funda með Vinnslustöðinni í þessari viku vegna frekari tjónabóta.

Bæjarráð fór yfir drög að viljayfirlýsingu milli Vestmannaeyjabæjar og HS Veitna er snúa að viðbrögðum við tjóninu á vatnslögninni, lagningu nýrrar vatnsleiðslu í samráði við HS Veitur og frekari framtíðarsýn fyrir vatnsveituna. Bæjarráð samþykkti drögin að viljayfirlýsingunni fyrir sitt leyti.

https://eyjar.net/tjonid-haerra-en-tryggingabaetur/

Nýjustu fréttir

ÍBV mætir Val í fyrsta leik úrslita
The Puffin Run hlaupið í níunda sinn á morgun
Sterkara íþróttasamfélag fyrir alla
Frábær endurkomusigur ÍBV gegn Víkingi
Eru hagsmunir Vestmannaeyja einskis virði?
Krefjandi aðstæður við borun
Jóný bæjarlistamaður Vestmannaeyja 2026
Guðný Geirsdóttir hjá ÍBV út 2027
viðburðir
Matey 2022
22. maí 2026
18:00
MATEY Seafood Festival
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.