Tónskáldakvöld með Marínu Ósk & Ragnari Ólafssyni
marina_ragnar_ads_min
Marína Ósk og Ragnar Ólafsson hafa bæði starfað lengi og komið víða við á íslenskri tónlistarsenu, en stíga nú út af sínum venjulega heimavelli í tónlist og troða nýja slóð. Ljósmynd/aðsend.

17. maí næstkomandi kl. 21:00 halda Marína Ósk og Ragnar Ólafsson hugljúfa tónleika í Alþýðuhúsinu í Vestmannaeyjum.  

Leikin verða frumsamin lög Marínu og lög Ragnars í bland við þekkta gullmola, að því er segir í tilkynningu frá skipuleggjendum.

Tónskáldin fóru nýlega tónleikaferðalag hringinn og léku á alls 12 tónleikastöðum, við hlýlegar og góðar undirtektir. Nú er komið að Vestmannaeyjum, en Marína á sterk ættartengsl til Eyja.  

Þegar Marína og Ragnar leika saman tónlist blandast heimar djass, rokks og þjóðlagatónlistar. Útkoman er töfrandi og hjartahlý músík sem lætur fáa ósnortna. 

Marína á ættir að rekja til Eyja og mun á tónleikunum spila splunkunýtt og óútgefið lag um ömmu sína, sem var sönn Eyjapía. 

Sérstakir gestir á tónleikunum verða meðlimir í Kirkjukór Landakirkju. Miðaverð 3.500 kr. og húsið opnar 30 mínútum fyrr.

Miðasala á Midix.

Facebook-viðburður.

Nýjustu fréttir

Ísland vann stórsigur á Úkraínu í undankeppni EM
Blásið til hausttónleika
Leggja til aukaferju með Herjólfi á sumrin
Hörgeyrargarður og ábyrgð okkar gagnvart framtíðinni
Elliði Snær og félagar mæta Úkraínu í kvöld
Bæjarstjórn fundar í dag – bein útsending
Kvöldopnun með afsláttum og uppákomum
Erfitt vor en sterkt sumar hjá Herjólfi
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.