Í dag bauð Sögusetrið 1627 í Vestmannaeyjum upp á dagskrá sem tengist Tyrkjaráninu 1627. Á þessu ári eru liðin 397 ár frá því að ræningjar frá Alsír komu hingað til Vestmannaeyja þar sem þeir rændu, rupluðu, drápu 36 íbúa og tóku 242 manneskjur með sér á þrælamarkaði í Alsír. Þessir atburðir mörkuðu djúp spor í sögu Vestmannaeyja og því er full ástæða til að minnast þeirra og miðla milli kynslóða Eyjamanna.
Nú í ár minnist Sögusetrið atburðanna með dagskrá sem dreifist á þrjá daga. Hinn 8. júní sl. var dagskrá í Krosskirkju í Austur- Landeyjum þar sem fjallað var um Kláus Eyjólfsson sem kom út til Vestmannaeyja nokkru eftir ránið og skrifaði vandaða frásögn um atburðina sem hér gerðust. Þá var og fjallað um altaristöflu kirkjunnar sem Kláus gaf en sú tafla hefur augljósa skírskotun til ránsins í Eyjum. Dagskrá þessi var fjölsótt og heppnaðist í alla staði vel.
Í dag kom fólk saman við Landakirkju og nokkrir þættir úr sögu hennar ræddir. Gengið var að Stakkagerðistúni að minnisvarða um Guðríði Símonardóttur. Þá var gengið á Skansinn þar sem rætt verður um ýmsa sögulega þætti Tyrkjaránsins. Göngustjóri var Ragnar Óskarsson og má sjá upptöku Halldórs B. Halldórssonar frá fyrsta hlutanum hér að neðan. Dagskraín heldur áfram á morgun.
Skráðu þig á fáðu nýjustu tilkynningar fyrst