„Með um tvö tonn á tímann”
Vestmannaey 22
Vestmannaey VE. Eyjafréttir/Eyjar.net: TMS

Ísfisktogarinn Vestmannaey VE hélt til veiða á mánudag að aflokinni Þjóðhátíð og var verið að landa úr skipinu í morgun. Aflinn er nánast fullfermi af þorski, ýsu, ufsa og löngu. Skipstjóri í veiðiferðinni var Egill Guðni Guðnason og var hann spurður á vef Síldarvinnslunnar hvernig veiðiferðin hafi gengið.

„Það má segja að hún hafi gengið vel. Það var keyrt beint austur á Ingólfshöfða og þar vorum við að veiðum allan tímann. Við vorum einungis 34 tíma að veiðum og vorum með um tvö tonn á tímann. Það er ekki hægt að kvarta yfir því. Það var smá golukaldi til að byrja með í túrnum en síðan ríkti bongóblíða,” segir Egill Guðni.

Vestmannaey mun halda á ný til veiða í kvöld, segir jafnframt í fréttinni.

Nýjustu fréttir

The Puffin Run hlaupið í níunda sinn á morgun
Sterkara íþróttasamfélag fyrir alla
Frábær endurkomusigur ÍBV gegn Víkingi
Eru hagsmunir Vestmannaeyja einskis virði?
Krefjandi aðstæður við borun
Jóný bæjarlistamaður Vestmannaeyja 2026
Guðný Geirsdóttir hjá ÍBV út 2027
Góð stemmning á herrakvöldi fótboltans
viðburðir
Matey 2022
22. maí 2026
18:00
MATEY Seafood Festival
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.