Æfa viðbrögð við ýmsum ógnum
Heraefing 24 Hbh Skjask 2
Skjáskot/youtube.

Sprengjusérfræðingar frá 17 löndum munu á næstu tveimur vikum æfa viðbrögð við ýmsum ógnum á hinni árlegu Northern Challenge. Um er að ræða alþjóðlega æfingu Atlantshafsbandalagsins sem séraðgerðasveit Landhelgisgæslunnar annast og skipuleggur. Alls 320 þátttakendur frá Íslandi, Belgíu, Kanada, Tékklandi, Danmörku, Frakklandi, Þýskalandi, Írlandi, Litáen, Nýja Sjálandi, Svíþjóð, Noregi, Austurríki, Póllandi, Hollandi og Bretlandi taka þátt að þessu sinni.

Á æfingunni gefst sprengjusérfræðingunum kostur á að æfa og samhæfa viðbrögð við atvikum sem kunna að koma upp, eins og t.d. hryðjuverkum. Á æfingunni er líkt eftir sprengjum sem fundist hafa víða um heim og þurfa þátttakendur að meðhöndla þær og aftengja. Þetta er í tuttugasta og þriðja sinn sem Northern Challenge er haldin hér á landi. Sem fyrr fer æfingin að stærstum hluta fram innan öryggissvæðisins á Keflavíkurflugvelli en einnig í Helguvík og í Hvalfirði.

Æfingin veitir sprengjusérfræðingum, sem koma hvaðanæva að úr heiminum, einstakt tækifæri til að samhæfa aðgerðir auk þess að miðla reynslu og þekkingu sinni til annarra liða. Northern Challenge hefur notið mikillar virðingar á meðal þjóða NATO og hefur skipað sér sess sem ein mikilvægasta æfing sprengjusérfræðinga innan Atlantshafsbandalagsins, segir í frétt á vef Landhelgisgæslunnar.

Hluti hópsins kom við hér í Eyjum í gær og náði Halldór B. Halldórsson því á myndband sem sjá má hér að neðan. Fyrst kíkir hann þó við í Hampiðjunni. Sjón er sögu ríkari!

Nýjustu fréttir

Ótrúlegt að 1.200 manns taki þátt í prófkjöri í svona litlu samfélagi 
Lagt til að ráðist verði í könnunarveiðar á humri
Vel heppnaðri loðnuvertíð lokið
Jón Þór leiðir lista Miðflokksins – Sæunn er bæjarstjóraefnið
Fyrri ferð föstudags felld niður
Elliði Snær markahæstur gegn Svíum
Laxey á Seafood Expo North America
Trúin og andlegt starf styrkur í sorginni
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.