Óbreytt ráðgjöf eftir síðustu loðnumælingar
not_lodn_op
Á loðnumiðunum. Eyjafréttir/Eyjar.net: Óskar P. Friðriksson

Uppsjávarveiðiskipin Aðalsteinn Jónsson og Polar Ammassak voru í samvinnu við Hafrannsóknastofnun við loðnurannsóknir í síðustu viku. Markmiðið var að kanna hvort meira af loðnu hefði skilað sér inn á norðvesturmið síðan loðnumælingar fóru fram þar í fyrri hluta febrúarmánuðar.

Magn af loðnu sem mældist nú var ívið lægra en fyrri mælingin og því ljóst að ekkert hafi bæst við loðnugönguna. Fyrri ráðgjöf Hafrannsóknastofnunar um veiðar á 8589 tonn loðnu á yfirstandandi vertíð stendur því óbreytt.

Mest af loðnunni var að finna á grunnunum út af Húnaflóa og Skagafirði (1. mynd). Hafrannsóknastofnun áformar ekki fleiri loðnumælingar þennan veturinn, segir í fréttatilkynningu frá Hafrannsóknastofnun.

Image001 (51)
Mynd. Leiðarlínur Polar Ammassak (bleik) og Aðalsteins Jónssonar (blá) dagana 24. febrúar
til 1. mars 2025 norðvestur af Íslandi og dreifing loðnu (lengd þverlína á siglingastefnu
skipanna sýnir þéttleikann).

Nýjustu fréttir

Spurt og svarað: Guðbjörg Sól frá Sjálfstæðisflokknum
VSV á stórsýningu í Barcelona: „Mikilvægt að vera sýnileg“
Vorhátíð Landakirkju
Byggjum þetta bara
ÍBV getur tryggt sæti í úrslitum með sigri í dag
Stelpurnar sækja Fram heim
Vonbrigði með dýpkun
Framtíðarsýn og faglegt samstarf við uppbyggingu Íþróttamiðstöðvarinnar
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.