Þetta er góður dagur fyrir okkur Eyjamenn
Aura komin að landi í Vestmannaeyjum í gærkvöldi. Mynd Óskar Pétur.

„Í kvöld var Vestmannaeyjastrengur 5 (VM5) tekin á land í Eyjum, nú eru bæði VM4 og VM5, nýjir rafstrengir Landsnets, komir á land í Eyjum. Fyrsta hluta framkvæmdanna er lokið,“ segir Íris Róbertsdóttir á Fésbókarsíðu sinni í gærkvöldi þegar langingaskipið Aura kom að landi í Eyjum.

„Tveir nýir rafstrengir hafa verið baráttumál okkar Eyjamanna undan farin ár enda mikið gengið á varðandi raforkuöryggi okkar. Þetta verður alger bylting fyrir orkuöryggi íbúa og fyrirtækja. Flutningsgetan til Eyja eykst um 120 MVA þegar þeir verða komnir í gagnið í haust. Þessi aukna flutningsgeta raforku er nauðsynleg vegna allrar þeirra uppbyggingar sem er í gangi og þeirra verkefna sem eru fram undan eru. Þetta er góður dagur fyrir okkur Eyjamenn,“ segir Íris og er hægt að taka undir það.

Eyþór Harðarson, oddviti sjálfstæðismanna í bæjarstjórn tekur í sama streng. „Magnað verkefni! Áralöng barátta fyrirtækjanna í Eyjum og bæjaryfirvalda að skila sér í verki. Til hamingju Eyjamenn,“ segir Eyþór.

VM 5 kominn á land í Eyjum. Mynd af FB-síðu Írisar.

Play Video

Nýjustu fréttir

Skýr skilaboð frá flokksmönnum 
Framtíðarsýn og grunngildi – Hvert erum við að fara?
Landeyjahöfn – Þurfum öflugt dæluskip
Viljum frekar byggja upp en að rífa niður 
Dæluskipið Álfsnes á Bíldudal
Ótrúlegt að 1.200 manns taki þátt í prófkjöri í svona litlu samfélagi 
Lagt til að ráðist verði í könnunarveiðar á humri
Vel heppnaðri loðnuvertíð lokið
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.