Þann 5. mars síðastliðinn kláruðust síðustu leikir fjórðu og lokaumferðar Vöruhúsdeildarinnar. Ágúst Gísli gerði sér lítið fyrir og vann alla sína leiki í umferðinni og endar því efstur í Vöruhúsdeildinni þetta árið. Fast á hæla hans kom Garðar B. Sigurjónsson, en Garðar hafði fram að þessu gert sig heimakæran á toppi 1. deildarinnar.
Í 2. deildinni tóku Bjarni Heimir og Sibbi efstu tvö sætin, Ívar Skæringur og Aron Gunnar endaðu á toppi 3. deildar og Andri Ísak og Hörður sigruðu 4. deildina þessa umferðina. Þar með ákvarðaðist lokastaða keppenda fyrir útsláttarkeppnina sem fór af stað seinasta föstudag.




Helstu tölfræði flokkar voru skráðir í hverjum leik í vetur en alls voru spilaðir 512 leikir. Hér má sjá leiðtoga mótsins í tölfræði flokkunum:
Hæsta heildarmeðaltal mótsins
55,84% – Garðar B.
53,84% – Ágúst Gísli
52,43% – Atli Meldal
52,38% – Sindri Orra
51,14% – Birnir Andri
Hæsta meðaltal í einum leik:
63,15% – Siggi Guðna
63,10% – Atli Meldal
62,78% – Birnir Andri
62,40% – Garðar B.
62,11% – Guðmundur Tómas
Hæsta útskot
147 – Aron Ingi
130 – Binni
130 – Siggi Guðna
130 – Sindri Orra
129 – Garðar B.
Besti leggur
15 – Atli Meldal
15 – Garðar B.
15 – Siggi Guðna
16 – Ágúst Gísli
16 – Árni Þór
16 – Birnir Andri
16 – Sindri Orra
Flest 180
13 – Sindri Orra
8 – Birnir Andri
6 – Siggi Guðna
5 – Óli Biggi
5 – Sibbi
Eins og áður sagði hafa keppendur hafa lokið deildarkeppnishluta mótsins og hófst 30 manna útsláttur fyrir viku síðan. Þegar þetta er skrifað eru aðeins tveir leikir eftir í 30 manna úrslitum en hér að neðan má sjá stöðuna eins og hún er í dag:

Sigurvegari verður að lokum krýndur laugardagskvöldið 28. mars næstkomandi upp í Höll en undanúrslitin og úrslitin fara fram þar. Dyrnar opna klukkan 18:00 og fyrri undanúrslitaleikurinn byrjar 19:00. Að sjálfsögðu verður Vöruhúsið með léttar veitingar til sölu fyrir svanga og hægt verður að svala þorstanum á barnum. Við hjá Pílufélaginu hvetjum alla til að taka kvöldið frá, styðja við strákana og starfið okkar.
Pílufélag Vestmannaeyja.