Bókin um ESB - Hvað er í pakkanum? 

Eftir Frosta Sigurjónsson.

Bókin er skrifuð af því tilefni að Íslendingar gætu fljótlega þurft að taka af­stöðu til þess hvort innganga í Evrópusambandið sé skynsamleg. Hún fjallar ekki um kosti og galla aðildar Íslands að ESB en gefur þess í stað greinargóða lýsingu á uppbyggingu sambandsins, stjórn­kerfi þess og þróun til dagsins í dag. Sérstaklega er fjallað um eigin­leika tolla­banda­lags ESB, stefnu þess í landbúnaðar- og sjávarútvegsmálum og einnig um utanríkismál ESB og myntbanda­lag evrunnar.

Áföll eins og fjármálahrun, Brexit, flóttamannavandi og heims­faraldur, sýna styrkleika og veikleika sambandsins og bókin skoðar hvernig ESB gekk að vinna úr þeim.
Í byrjun árs 2026 glímdi Evrópusambandið við nokkur stór vandamál sem tekin eru til skoðunar í bókinni, svo sem vaxandi lýðræðishalla, öldrun, versn­andi skulda­stöðu, ófjármagnaða lífeyrissjóði, stríð í Úkraínu, hátt orku­verð og ef­na­hags­samdrátt. Á sama tíma hefur fylgispekt aðildar­ríkjanna við stefnu og ýmsar ákvarðanir ESB farið minnkandi.

Evrópusambandið er nú á krossgötum. Leiðtogar sumra aðildarríkja og æðstu embættismenn ESB, segja nauð­syn­legt að ESB verði sam­bands­ríki og herveldi, til að ráða við aðsteðjandi vandamál og treysta stöðu þess í sam­keppni stór­velda í framtíðinni.

Bókin um ESB er skrifuð fyrir þá sem vilja vita hvernig sambandið starfar og helstu áskoranir þess í dag, einskonar rýniskýrsla og skyldu­lesning fyrir alla sem vilja vita „hvað er í pakkanum“.

Bókin er 130 blaðsíður og er fáanleg bæði sem kilja og rafbók.

Bókin um ESB fæst á vefslóðinni: https://frostis.is/verslun/

Nýjustu fréttir

Dreymir um að verða fótboltamaður
Björt hlakkar til að læra að lesa
COWI annast umhverfismat vegna stórskipakants
Tvöföld ÍBV-veisla í dag
Ólöf María snýr aftur í ÍBV og gerir tveggja ára samning
Eyjasamfélagið heillaði mig strax
Milan Tomic framlengir við ÍBV
Dreymir um að verða lögreglumaður
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.