Hæsti styrkurinn til Eyja
Listaverkið á hrauninu. Eldfell er til vinstri á myndinni. Ljósmynd/Halldór B. Halldórsson

Vestmannaeyjabær fær hæsta styrkinn úr Framkvæmdasjóði ferðamannastaða í ár. Styrkurinn rennur til uppbyggingar á Eldfelli. Alls fara um 107 milljónir króna í gerð göngustíga og trappa sem tengjast listaverkinu Sjónarhorn flakkarans, með það að markmiði að bæta öryggi gesta og vernda viðkvæmt náttúruumhverfi.

Úthlutunin er hluti af heildarpakka upp á nærri 490 milljónir króna til verkefna um allt land, þar sem sérstök áhersla er lögð á öryggi á ferðamannastöðum. Lesa má tilkynningu atvinnuvegaráðuneytisins í heild sinni hér að neðan.

Atvinnuvegaráðherra úthlutar til 18 verkefna úr Framkvæmdasjóði ferðamannastaða

Hanna Katrín Friðriksson atvinnuvegaráðherra úthlutaði í dag til 18 verkefna úr Framkvæmdasjóði ferðamannastaða fyrir árið 2026. Heildarfjárhæð styrkja nemur nær 490 milljónum króna sem dreifast til verkefna víðsvegar um landið.

Sérstök áhersla var lögð á öryggi á ferðamannastöðum við úthlutun að þessu sinni og tók gæðamat sjóðsins mið af þeirri áherslu.

„Öryggi á ferðamannastöðum á Íslandi er ekki einungis á ábyrgð stjórnvalda, heldur sameiginlegt verkefni okkar allra sem vinnum að málefnum ferðaþjónustunnar“ sagði atvinnuvegaráðherra. „Stórbrotin náttúra Íslands heillar vissulega en hún getur líka verið óvægin. Eitt af hlutverkum Framkvæmdasjóðs ferðamannastaða er því að tryggja öryggi gesta“.

Hæsti styrkur úr sjóðnum í ár fer til Vestmannaeyjabæjar vegna gerð göngustíga á Eldfell í tengslum við listaverk Ólafs Elíassonar sem ber heitið Sjónarhorn flakkarans (The Wanderer‘s Perspective). Meginmarkmið verkefnisins er að tryggja öryggi ferðamanna og vernda viðkvæma náttúru svæðisins en um leið minnast eldgossins á Heimaey 1973.

Markmið Framkvæmdasjóðs ferðamannastaða er að stuðla að uppbyggingu, viðhaldi og verndun ferðamannastaða, stuðla að jafnari dreifingu ferðamanna um landið og styðja við svæðisbundna þróun.

Eftirfarandi verkefni hljóta styrk úr sjóðnum í ár:

Áhugamannafélög

  • Ferðafélag Fljótsdalshéraðs – Göngubrú yfir Breiðuvík a Víknaslóðum: kr. 3.600.000
  • Ferðafélag Íslands – Brú yfir Krossá: kr. 2.500.000
  • Ferðafélag Íslands – Laugavegur – öryggismál – náttúruvernd og sjálfbærnistefna:  5.235.000
  • Félag Látramanna – Varnagarður og viðhald a göngu- og vegaslóða á Látrum í Atlavík: kr. 11.483.749

 

Fyrirtæki

  • Reykjadalsskálinn slf. – Reykjadalsgönguleiðin: kr. 40.353.600

 

Landeigandi/landeigendafélög

  • Landeigendur Voga ehf.- Hönnun innviða og gera stíga og brúa yfir flekaskilin við Grjótagá í Mývatnssveit: kr. 43.074.708
  • Marteinn Óli Aðalsteinsson – Bætt öryggi og nátturuvernd við austanvert Stuðlagil: kr. 35.000.000
  • Marteinn Óli Aðalsteinsson – Bætt aðgengi niður að Jöklu við austanvert Stuðlagil: kr. 35.522.011

 

Sveitarfélög

  • Akureyrarbær – Grímsey – Lagfæring gönguleiðar í Grímsey: kr. 10.636.605
  • Fjarðabyggð – Bleiksárfoss 2. Áfangi: kr. 39.368.000
  • Fljótsdalshreppur- Fossahringurinn – Endurbætur og upplýsingagjöf: kr. 15.680.000
  • Hvalfjarðarsveit – Glymur í botni Hvalfjarðar – áframhaldandi vernd og uppbygging: kr. 26.450.000
  • Múlaþing – Baugur BjóIfs – bílastæði og gönguleið: kr. 29.000.000
  • Múlaþing – Endurbætur á gönguleið við Fardagafoss: kr. 18.000.000
  • Rángarþing ytri – Sigöldugljúfur – öryggisinnviðir: kr. 28.000.000
  • Sveitarfélagið Stykkishólmur – Fjöregg: kr. 35.000.000
  • Vestmannaeyjar – Tröppur/göngustígur á Eldfell í tengslum við listaverk Ólafs Elíassonar  Sjónarhorn flakkarans (The Wanderer’s perspective): kr. 107.478.803
  • Vesturbyggð – Útsýnispallur á Strengfell: kr. 3.217.524

Nýjustu fréttir

Neyðarkall úr Eyjum
Sigmundur Davíð með opinn fund
Hæsti styrkurinn til Eyja
Dýptarmæling í dag
Eyjalistinn í sókn: Heimasíða og stefnuskrá líta dagsins ljós!
Vinnandi hendur frá hafi til hátíðarborðs
Kristmundur Axel kemur fram á Þjóðhátíð
Óskar Jósúason í 4. sæti á lista Sjálfstæðisflokksins

Góð ráð fyrir siglingu

Sjóveiki

Hvað er sjóveiki?

Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.

Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.

Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.

Góð ráð til að hindra sjóveiki:

  • Góð hvíld daginn fyrir brottför. Að fara seint að sofa og snemma um borð í bát fer ekki vel saman ef fólk er hætt við sjóveiki.
  • Forðist áfenga drykki daginn fyrir brottför
  • Forðist djúpsteiktan, brasaðan eða saltan mat daginn fyrir siglingu.
  • Borðið góðan morgunverð. Borðið gjarnan hvítt brauð, hafragraut og ávexti þó ekki sítrus ávexti.
  • Forðist mikið koffein. Mikið kaffi er ekki það sem maganum líkar fyrir sjóferð.
  • Hafðu mat með þér á sjó. Gott er að hafa samlokur með kjúklingi eða kalkún. Kjötið er fitusnautt og brauðið er róandi í maga. Hafðu endilega eitthvað til að grípa í sem er létt í maga. Bananar eru mjög góðir til að narta í ef þú finnur fyrir ógleði en einnig er gott að hafa létt kex eða annað sem er ekki salt eða fitumikið.
  • Drekkið vel af vatni en einnig er gott er að drekka kóla drykki eða engiferöl í sjóferðinni

Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.

  • Koffínátín – fæst án lyfseðils
  • Postafen – fæst án lyfseðils
  • Scopolamin plástur – lyfseðilsskyltEinnig má fá armbönd gegn ferðaveiki sem sumir telja að hjálpi.

Önnur ráð:

  • Engifer er jurt sem nýlega hefur fengið aukna athygli vegna þess að því er haldið fram að hún geti slegið á ógleði sem fylgir sjóveiki. Til forna tuggðu kínverskir sjómenn engiferrót til að draga úr sjóveiki. Flest lyf sem virka á ógleði verka á heilann en engifer virkar aðeins á magann. Ráðlagt er að taka 1000 mg. hylki hálftíma fyrir brottför. Einnig má taka eitt eða tvö 500 mg. hylki sem eru til viðbótar á ferðalaginu. Ekki er ráðlagt að drekka coke með engifertöflum.
  • Piparminta og te eru einnig gömul húsráð við ferðaveiki.
  • Sumum finnst betra að taka sýrujafnandi töflur, Alminox eða slíkt áður en þú heldur á sjó og þá er gott að hafa box með út á sjó.

Hvar í skipinu er best að vera o.fl.

  • Minna finnst fyrir hreyfingu og veltingi ef maður er staddur næst miðju bátsins.
  • Mörgum finnst gott að vera í kulda, t.d.að vera úti á dekki og láta vindinn leika um sig.
  • Matarlykt fer illa í þá sem hætt er við sjóveiki og einnig pústið frá bátnum.

Þungun:

Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.