„Á morgun, 1. maí kemur út fyrsta lagið af plötunni Sólarlagi á Spotify, væntanlega eftir miðnætti í nótt,“ segir Guðrún Erlingsdóttir sem stefnir á tónleika í Eldheimum á goslokum í sumar þar sem platan verður kynnt.
„Lagið fjallar um ömmustelpuna mína, Bjarteyju Ósk sem verður 17 ára á morgun. Lagið var samið til hennar og textinn fjallar um heimsóknirnar hennar þegar hún var lítil til Rúnu ömmu og Gylfa afa í Dverghamri. Nafnið Maí sól kemur til af því að Bjartey Ósk fæddist fyrsta dag maí, á sjálfan verkalýðsdaginn, og kom með mikla sól inn í líf mitt.“
Hljóðfæraleikarar í þessu lagi eru þeir sömu og á Sólarlagi: Jóhann Ásmundsson á trommur, Ásmundur Jóhannsson á bassa, Sigurgeir Sigmundsson á gítar og Arnór Vilbergsson á hljómborð. „Sísí Ástþórs syngur bakraddir en ég og dóttir mín, Jóhanna Björk Gylfadóttir, syngjum lagið saman“ segir Guðrún en vinnsla plötunnar er í fullum gangi.
„Platan gengur vel og er nú í Þýskalandi í svokölluðum „skurði“, en fer síðan til Danmerkur um 20. maí. Við Gylfi ætlum til Danmerkur til að hlusta á prufueintak af plötunni. Þegar ég hef samþykkt hana fer hún í framleiðslu og við Gylfi verðum viðstödd þegar platan fer í pressun.
Ég var að bæta Sólarlagi við á geisladiski (CD), þannig að nú geta allir tryggt sér Sólarlag á vínylplötu, geisladiski og stafrænt. Um að gera að tryggja sér eintak á Karolinafund – söfnunin þar stendur enn,“ segir Guðrún en í undirbúningi eru útgáfutónleikar í Eldheimum á goslokum.