Til stóð að Herjólfur hæfi siglingar samkvæmt sumaráætlun með átta ferðum á dag frá og með 5. júní, en þeim áformum hefur verið frestað. Ástæðan er sú að ferjan er enn í siglingum á einni skrúfu og því ekki mögulegt að halda úti fyrirhugaðri áætlun að svo stöddu.
Herjólfur mun því áfram sigla samkvæmt hefðbundinni sjö ferða áætlun þar til annað verður tilkynnt.
Staða samgöngumála í Vestmannaeyjum hefur verið afar slæm það sem af er ári og hafa farþegar ítrekað þurft að glíma við seinkanir, breytingar á áætlunum og óvissu í siglingum.
Í dag verður haldinn opinn fundur í Höllinni þar sem fjallað verður um stöðu Landeyjahafnar, þær áskoranir sem komu upp í vetur sem og framkvæmd og árangur dýpkunar undanfarin ár. Fundurinn hefst kl 17:00.