Rakel býður upp á Reikiheilun í Eyjum
Rakel kennir Reikiheilun.

Rakel Haraldsdóttir hefur um árabil haft áhuga á andlegum málefnum og fyrir tveimur árum hóf hún nám í Reiki. Í dag býður hún upp á Reikiheilun og segir meðferðarformið hafa haft jákvæð áhrif á eigið líf. Dagana 19.-21. júní verður hún í Vestmannaeyjum þar sem hún mun bjóða upp á Reikiheilun í hlýju og öruggu umhverfi. Við fengum að heyra nánar um Reiki og hvaða ávinning fólk getur haft af slíkri meðferð.

Hvernig kynntist þú Reikiheilun fyrst?
Ég fór sjálf í heilun þegar ég var 19 ára næstum (30 ár síðan) og búin að ganga í gegnum mikla erfiðleika í mínu persónulega lífi. Frænka mín bókaði tíma handa mér og fór með mig,ég vissi sjálf ekkert hvað ég væri að fara út í .
Ég hef alltaf haft áhuga á andlegum málefnum svo að mér þótti þetta spennandi.

Hvað varð til þess að þú fórst að starfa við heilun?
Ég hef gengið í gegnum ýmislegt síðustu árin og byjaði að tengjast sjálfri mér aftur og tók andlega þáttinn alveg fyrir. Vinkona mín benti mér á námskeið fyrir tveimur árum og við skelltum okkur saman á það. ég fann mig algerlega í þessu og úr varð að ég byrjaði að heila aðra og hjálpa til að þeim liði betur.

Hvað heillar þig mest við Reiki?
Reiki er svo magnað. Þessi andlega tenging og tengingin við orkustöðvar líkamans. Líkaminn nefnilega man allt. Og það að geta hjálpað fólki að líða betur með handaryfirlagningu er svo magnað og fallegt.

Fyrir þá sem þekkja Reiki ekki, hvernig myndir þú útskýra það á einfaldan hátt?
Reiki er meðferðarform þar sem heilandi orku er miðlað í gegnum hendur reiki meðferðaraðilans til manneskjunnar sem þiggur meðferðina. Tilgangur reikis er að koma jafnvægi á orku einstaklingsins sem á að styðja náttúrulega hæfni líkamans til að fyrirbyggja vandamál og lækna sig á andlegu og líkamlegu sviði.

Hvað fær fólk út úr því að fara í Reikiheilun?
Reiki er mild og afslappandi meðferð sem styður við náttúrulega getu líkamans og huga til að finna jafnvægi. Margir sem koma í Reiki upplifa djúpa slökun, minni streitu, meiri innri ró og betri tengingu við sjálfa sig. sumir finna fyrir aukinni orku og skýrari hugsun, á meðan aðrir upplifa að tilfinningaleg spenna eða álag fari að losna.
Hver upplifun er einstök og engir tveir einstaklingar upplifa Reiki á sama hátt. Fyrir marga er Reiki fyrst og fremst stund þar sem þeir gefa sér leyfi til að staldra við, hvíla sig og næra líkama, huga og sál.

Nýjustu fréttir

Tæplega 2.000 farþegar nýttu áætlunarflugið
Rakel býður upp á Reikiheilun í Eyjum
ÍBV sækir Þrótt heim í dag
Viðgerð Herjólfs dregst fram í júlí
Standa þarf vörð um hafrannsóknir
Stórseiðahús reist á aðeins tíu mánuðum
Hafró leggur til minni þorskkvóta en mikla aukningu í loðnu
Leiðin liggur á Eyjuna fögru
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.