
Í dag lýkur hinu árlega TM-móti ÍBV í Vestmannaeyjum þar sem hundruð stúlkna í 5. flokki hafa komið saman til að njóta knattspyrnu, samveru og skemmtunar síðustu daga.
TM-mótið hefur verið haldið í Vestmannaeyjum frá árinu 1990 og hefur á þeim tíma skipað sér sess sem eitt vinsælasta og stærsta knattspyrnumót landsins fyrir stúlkur í þessum aldursflokki. Margar af fremstu knattspyrnukonum Íslands stigu sín fyrstu skref á mótinu og eiga þaðan góðar minningar.
Þrátt fyrir að úrslitin skipti máli er andinn, vináttan og upplifunin það sem stendur upp úr. Vestmannaeyjar hafa enn á ný fyllst af lífi, litum og gleði þegar keppendur, þjálfarar, foreldrar og stuðningsfólk hafa lagt leið sína til Eyja.
Eyjafréttir litu við á lokadegi mótsins til að fanga stemninguna sem má sjá í myndbandinu hér að neðan.