ÍBV stelpurnar gerðu jafntefli við Þrótt R.
Úr leik ÍBV og Grindavík/Njarðvíkur á Hásteinsvelli. Ljósmynd/Sigfús Gunnar Guðmundsson.

Kvennalið ÍBV í fótbolta gerði markalaust jafntefli við Þrótt R. í áttundu umferð Bestu deildar kvenna, á Avis vellinum í dag. Eyjakonur endurheimtu nokkra leikmenn af meiðslalistanum í dag en Allison Grace Lowrey, Helena Hekla Hlynsdóttir og Fridrikka Marie Clementsen voru allar í leikmannahópnum.  

Leikurinn var nokkuð jafn og fengu bæði lið ágætis færi. Allison Grace Lowrey fékk besta færi ÍBV í fyrri hálfleik þegar hún slapp ein í gegn. Hún vann þá boltann af varnarmanni Þróttar en Mollee Swift varði frá henni. Þróttur fékk þrjú afbragðsfæri undir lok hálfleiksins en Guðný Geirsdóttir varði frábærlega. Markalaust í hálfleik. 

Guðný varði vel undir lok leiks

Eyjakonur byrjuðu síðari hálfleikinn betur en náðu ekki að búa til neitt alvöru færi. Þegar líða tók á síðari hálfleikinn jafnaðist leikurinn út og skiptust liðin á að sækja án þess að skapa neitt að ráði. Þróttur fékk gott færi undir lok leiks til að tryggja stigin þrjú en Guðný Geirsdóttir sá til þess að liðin skiptu með sér stigunum. Lokatölur leiksins 0-0.

Eyjakonur eru eftir átta umferðir í fjórða sæti með 14 stig, jafnar Stjörnunni að stigum sem sitja í þriðja sæti deildarinnar. Þróttur er í fimmta sæti með 13 stig. 

Úrslit úr áttundu umferð:

Þróttur R. 0 – 0 ÍBV

Víkingur R. 2 – 5 FH

Fram 0 – 2 Grindavík/Njarðvík

Breiðablik 1 – 3 Stjarnan

16:00 Valur – Þór/KA

Staðan í Bestu deild kvenna:

  1. FH – 19 stig
  2. Breiðablik – 18 stig
  3. Stjarnan – 14 stig
  4. ÍBV – 14 stig
  5. Þróttur R. – 13 stig
  6. Grindavík/Njarðvík – 11 stig
  7. Víkingur R. – 9 stig 
  8. Valur – 7 stig
  9. Fram – 4 stig 
  10. Þór/KA – 2 stig 

Nýjustu fréttir

Sýndu fjölbreytni, metnað og sköpunargleði
ÍBV stelpurnar gerðu jafntefli við Þrótt R.
Lokadagur TM-mótsins: Gleði, keppni og ógleymanlegar minningar
Vestmannaeyjabær: Ráðið í stöðu deildarstjóra launadeildar
Tæplega 2.000 farþegar nýttu áætlunarflugið
Rakel býður upp á Reikiheilun í Eyjum
ÍBV sækir Þrótt heim í dag
Viðgerð Herjólfs dregst fram í júlí
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.