Aron Valtýsson - Hleypur maraþon fyrir Krabbavörn Vestmannaeyja
Aron Valtýsson á hlaupum.

Í aðdraganda Reykjavíkurmaraþons Íslandsbanka, sem fram fer laugardaginn 22. ágúst, ræða Eyjafréttir við nokkra hlaupara frá Vestmannaeyjum sem taka þátt í ár.

Næstur í röðinni er Aron Valtýsson, sem ætlar að hlaupa 42,2 kílómetra. Hann hleypur fyrir Krabbavörn Vestmannaeyja.

Aldur? Ég er 30 ára.

Fjölskylda? Ég á góða fjölskyldu. Ingunn Lísa mamma mín, systir mín er Erna Valtýsdóttir og bróðir minn er Valur Valtýsson.

Við hvað starfar þú? Ég starfa við múrverk, hef verið að læra múrarann. Svo er ég líka með fjarþjálfun meðfram vinnunni.

Hvenær byrjaðir þú að hlaupa? Ég hef verið í íþróttum frá því ég var mjög ungur og hef verið mikið á hreyfingu. Ég byrjaði svo meira að stunda svona almenn útihlaup í kringum 15 ára aldurinn. Hlaupin hafa síðan komið svolítið í bylgjum samhliða lyftingunum, sem ég hef stundað mikið síðan ég var um 16 ára.

Uppáhalds vegalengd sem þú hleypur? Líklega 10 kílómetrar. Mér finnst það góð vegalengd þar sem maður fær bæði hraða og úthald inn í hlaupið án þess að það verði of mikið verkefni.

Hvar er skemmtilegast að hlaupa? Klárlega úti í náttúrunni. Mér finnst líka sérstaklega gaman að hlaupa í Vestmannaeyjum. Það er eitthvað við umhverfið þar sem gerir hlaupin skemmtilegri.

Hvenær sólarhrings er best að hlaupa? Mér finnst það ekki skipta öllu.

Besti hlaupfélaginn? Ég er eiginlega mjög góður einn. Ég set bara góða tónlist í eyrun og fer af stað. Mér finnst mjög gott að vera einn með hugsununum og tónlistinni.

Uppáhalds hlaupaskór og fatnaður? Ég er ekki með eitthvað eitt ákveðið merki sem ég verð að nota. Fyrir mér skiptir mestu máli að skórnir séu þægilegir og henti mér vel. Svo er íslenska veðrið auðvitað bara sitt eigið æfingaprógramm.

Hvað er ómissandi á hlaupaæfingu? Það er allavega gott að hafa góða tónlist og taka eitt skref í einu. Það þarf ekki alltaf að hugsa um alla vegalengdina sem er framundan – maður þarf bara að taka næsta skref.

Hvernig nærir þú þig kvöldinu áður og morguninn fyrir keppnishlaup? Ég reyni að borða vel, sérstaklega kolvetni, og passa líka að fá nóg prótein. Svo finnst mér mikilvægt að vera búinn að borða mat sem ég þekki og veit að fer vel í mig. Ég vil helst ekki vera að prófa eitthvað nýtt rétt fyrir keppni.

Bestu tímar í 5 km, 10 km og hálfmaraþoni? Ég er ekki alveg kominn með fasta tíma í 5 og 10 km sem ég myndi vilja nefna. Ég hljóp hins vegar hálfmaraþon í Íslandsmaraþoninu í fyrra og tíminn var í kringum 1:40.

Hvað hleypur þú mikið í hverri viku? Það er mjög misjafnt. Ég lyfti mikið meðfram hlaupunum og hef verið að reyna að auka hlaupin smám saman núna þegar ég er að undirbúa mig fyrir þetta hlaup.

Hleypur þú eftir æfingaáætlun? Nei ekki endilega en fer meira núna en áður. Ég hef verið að reyna að vera markvissari í undirbúningnum og auka hlaupin þannig að líkaminn fái tíma til að venjast álaginu.

Hvaða vegalengd tekur þú í Reykjavíkurmaraþoninu? Ég ætla að taka maraþonið, 42,2 km.

Ertu með einhver markmið fyrir hlaupið? Markmiðið er fyrst og fremst að klára þetta og gera mitt besta. Ég vil líka njóta dagsins og upplifunarinnar, frekar en að láta ákveðinn tíma stjórna öllu.

Hvernig hefur undirbúningurinn gengið? Hann hefur gengið ágætlega. Smá meiðsli stundum í liðþófa en vonandi verður það í lagi á hlaupadag. Ég er að koma úr því að hafa verið meira í lyftingunum og hef þurft að auka hlaupin smám saman. Það er alveg önnur tegund af álagi að undirbúa sig fyrir maraþon.

Ætlar þú að hlaupa fyrir eitthvert góðgerðarfélag? Af hverju og hvernig hefur það gengið? Já, ég ætla að hlaupa fyrir Krabbavörn í Vestmannaeyjum. Það er mjög persónulegt fyrir mig þar sem stjúpfaðir minn, Svenni, lést úr heilakrabbameini. Mig langaði því að tengja hlaupið við eitthvað sem hefur meiri tilgang en bara að klára ákveðna vegalengd.

Það hefur gengið mjög vel og ég er ótrúlega þakklátur fyrir allan stuðninginn sem ég hef fengið. Það gerir þetta ennþá meira gefandi að vita að fólk er tilbúið að leggja sitt af mörkum í málefni sem skiptir svo marga máli.

Lýstu þér sem hlaupara í einni setningu? Ég er kannski ekki besti eða hraðasti hlauparinn, en ég er þrautseigur og tek eitt skref í einu.

Eitthvað að lokum? Hlaupin eru svolítið eins og lífið sjálft. Stundum líður manni vel og maður flýgur áfram, en stundum eru fæturnir þyngri og maður heldur bara áfram. Maður þarf ekki alltaf að sjá alla leiðina fram undan – stundum þarf maður bara að taka næsta skref.

Hægt er að heita á Aron með því að smella hér.

Nýjustu fréttir

Aron Valtýsson – Hleypur maraþon fyrir Krabbavörn Vestmannaeyja
Millet-gengið tekur Eyjar alltaf með trompi
Páll aftur á Sprengisandi – Beint í djúpu laugina
Framtíðarsýn um réttlæti og stöðugleika
Fótboltamaðurinn Bjarki Björn Gunnarsson er íþróttamaður mánaðarins
Veðurblíðan í Eyjum í sumar á sér fáar hliðstæður
Fjölbreytt námskeið hjá Visku í haust
Myndlistargyðjan var alltaf í fyrsta sæti
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.