Eyjólfur Ármannsson innviðaráðherra og forsvarsmenn Eyjaganga undirrituðu í gær viljayfirlýsingu um samstarf við könnun á fýsileika jarðganga milli lands og Vestmannaeyja. Markmiðið er að skapa grundvöll fyrir áframhaldandi rannsóknir og greiningar vegna verkefnisins.
Samkvæmt viljayfirlýsingunni mun Eyjagöng ehf. bera ábyrgð á og fjármagna heildstæðar fýsileikarannsóknir. Þær munu meðal annars taka til jarðfræðilegra og tæknilegra forsendna, umhverfisþátta, umferðarspár og fjárhagslegrar uppbyggingar verkefnisins.
Ríkið mun styðja við undirbúninginn með miðlun gagna og greininga, ráðgjöf um leyfismál og samstarfi um tengingu mögulegra jarðganga við vegakerfi landsins.
„Það er ánægjulegt að heimamenn í Eyjum hafi tekið frumkvæði að því að fjármagna og leiða svo umfangsmiklar rannsóknir. Það er mikilvægt að ríkið greiði götu verkefnisins á þessu stigi og það gerum við með faglegu samstarfi, miðlun gagna og ráðgjöf,“ segir Eyjólfur Ármannsson innviðaráðherra.
Eyjagöng ehf. voru stofnuð til að kanna fýsileika jarðganga milli lands og Vestmannaeyja. Verkefnið tekur til hönnunar, fjármögnunar, byggingar og reksturs mögulegra ganga. Að félaginu standa sveitarfélög, fyrirtæki og aðrir fjárfestar.
Félagið hefur þegar hafið þrepaskiptar jarðrannsóknir sem eiga að verða grundvöllur upplýstrar ákvörðunar um hvort og með hvaða hætti ráðist verði í framkvæmdina. Gert er ráð fyrir að rannsóknirnar standi yfir næstu tvö ár, segir í tilkynningu innviðaráðuneytisins.
Árni Sigfússon, stjórnarformaður Eyjaganga, er í ítarlegu viðtali í nýjasta vefblaði Eyjafrétta sem kom út í gær. Þar fjallar hann um stöðu verkefnisins, rannsóknirnar sem þegar hafa farið fram og næstu skref. Meðal þess sem hann greindi frá var fyrirhuguð viljayfirlýsing og samstarf Eyjaganga við ríkið um áframhaldandi undirbúning verkefnisins. Hér geta áskrifendur lesið blaðið.