COWI annast umhverfismat vegna stórskipakants
Eiðið, höfnin og Heimaklettur. Ljósmynd/Halldór B. Halldórsson
TMS M Frett 26 (2)
Tryggvi Már
Sæmundsson

Framkvæmda- og hafnarráð Vestmannaeyja hefur samþykkt að taka tilboði COWI í umhverfismat og vinnu við nýtt aðalskipulag á svæðinu við Eiðið og Haugasvæðið. Tilboð fyrirtækisins hljóðaði upp á tæpar 14,9 milljónir króna og var það lægsta af fjórum tilboðum sem bárust.

Áður hafði hafnarstjóra og sviðsstjóra umhverfis- og framkvæmdasviðs verið falið að kanna verð í verkefnið, sem tengist áformum um stórskipakant og grjótleit. Tilboðin voru opnuð 25. ágúst.

Tilboðin voru eftirfarandi:

  • COWI: 14.886.306 krónur
  • VSÓ: 17.850.792 krónur
  • EFLA: 18.807.262 krónur
  • Verkís: 33.129.700 krónur

Framkvæmda- og hafnarráð samþykkti að taka lægsta tilboðinu og fól hafnarstjóra og sviðsstjóra að ganga til samninga við COWI á grundvelli þess.

Mikilvægt skref í uppbyggingu hafnarinnar

Í fundargerð ráðsins kemur fram að vinna við umhverfismat og nýtt aðalskipulag á svæðinu við Eiðið sé mikilvægt skref í áframhaldandi innviðauppbyggingu Vestmannaeyjahafnar. Verkefnið eigi að skapa nauðsynlegar forsendur fyrir frekari uppbyggingu hafnarinnar og styrkingu samfélagsins til framtíðar.

Ráðið leggur ríka áherslu á hraða og örugga framvindu verkefnisins enda sé um mikilvæga framkvæmd að ræða fyrir framtíðaruppbyggingu og starfsemi Vestmannaeyjahafnar.

Þessu tengt

Gætu sparað hundruð milljóna ef grjótið reynist vel

Nú er unnið að rannsóknum á jarðefni úr gryfju á Haugasvæðinu í Vestmannaeyjum til að kanna hvort þar sé að finna grjót sem hentar í fyrirhugaða stórskipahöfn við Eiðið. Takist að vinna nægilega stórt og gott grjót á staðnum gæti það sparað hundruð milljóna króna, að sögn Brynjars Ólafssonar, framkvæmdastjóra umhverfis- og framkvæmdasviðs Vestmannaeyjabæjar. Annars […]

Nýjustu fréttir

Ísland vann stórsigur á Úkraínu í undankeppni EM
Blásið til hausttónleika
Leggja til aukaferju með Herjólfi á sumrin
Hörgeyrargarður og ábyrgð okkar gagnvart framtíðinni
Elliði Snær og félagar mæta Úkraínu í kvöld
Bæjarstjórn fundar í dag – bein útsending
Kvöldopnun með afsláttum og uppákomum
Erfitt vor en sterkt sumar hjá Herjólfi
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.