
Innviðaráðuneytið hefur staðfest við Eyjafréttir að það hafi á árinu 2026 kveðið upp þrjá úrskurði þar sem uppsagnir starfsmanna Vestmannaeyjabæjar voru taldar ólögmætar. Úrskurðirnir féllu á 78 daga tímabili, frá 11. júní til 28. ágúst.
Eyjafréttir óskuðu eftir upplýsingum frá ráðuneytinu um fjölda slíkra úrskurða, málsnúmer þeirra og dagsetningar. Jafnframt var óskað eftir afritum með nöfnum og öðrum persónugreinanlegum upplýsingum afmáðum.
Í svari ráðuneytisins kemur fram að úrskurðirnir þrír séu:
Eyjafréttir hafa áður fjallað um tvo fyrri úrskurðina. Upplýsingar ráðuneytisins staðfesta nú að þriðji úrskurðurinn hafi einnig fallið Vestmannaeyjabæ í óhag.
Í úrskurðinum frá 11. júní komst ráðuneytið að þeirri niðurstöðu að uppsögn starfsmanns Vestmannaeyjabæjar hefði ekki uppfyllt skilyrði viðeigandi kjarasamnings og hefði ekki verið byggð á lögmætum grundvelli.
Starfsmanninum hafði áður verið veitt skrifleg áminning og tækifæri til að bæta ráð sitt. Uppsögnin var síðar byggð á atvikum sem áttu öll að hafa gerst áður en áminningin var veitt. Ráðuneytið taldi að þau gætu því ekki talist ítrekun brota eftir áminninguna.
Í úrskurðinum frá 4. ágúst var fyrirvaralaus uppsögn kennara hjá Vestmannaeyjabæ talin ólögmæt. Ráðuneytið taldi meðal annars að sveitarfélagið hefði ekki sýnt fram á að áframhaldandi viðvera starfsmannsins ylli starfseminni skaða. Þá hefði ekki verið sýnt fram á að vægari úrræði hefðu verið tekin til fullnægjandi skoðunar.
Niðurstaða ráðuneytisins var að ákvörðunin hefði ekki byggst á málefnalegum sjónarmiðum og að ekki hefði verið sýnt fram á að meðalhófsreglu stjórnsýslulaga hefði verið nægilega gætt.
Ráðuneytið synjaði beiðni Eyjafrétta um afrit af þriðja úrskurðinum, jafnvel þótt nöfn og aðrar persónugreinanlegar upplýsingar yrðu afmáðar.
Í rökstuðningi ráðuneytisins kemur fram að úrskurðurinn varði starfssamband tiltekins starfsmanns og hafi að geyma viðkvæmar persónuupplýsingar um einkamálefni einstaklinga.
Upplýsingar af þessu tagi komi svo víða fyrir í úrskurðinum að ráðuneytið telji ekki unnt að veita aðgang að honum að hluta. Ráðuneytið hafi því ekki orðið við beiðninni að öðru leyti en með því að staðfesta tilvist úrskurðarins, niðurstöðu hans, málsnúmer og dagsetningu.
Af þeim sökum liggja ekki fyrir opinberar upplýsingar um málsatvik eða nánari lagalegar forsendur þriðja úrskurðarins.
Eyjafréttir hafa óskað eftir viðbrögðum Vestmannaeyjabæjar við þeirri staðfestingu ráðuneytisins að þrjár uppsagnir starfsmanna sveitarfélagsins hafi verið úrskurðaðar ólögmætar á árinu.
Jafnframt hefur verið óskað eftir upplýsingum um hvort úrskurðirnir hafi leitt til heildstæðrar yfirferðar á verklagi sveitarfélagsins við meðferð starfsmannamála og hvort bæjarstjórn hafi verið upplýst um allar þrjár niðurstöðurnar.