
Það var glatt á hjalla í Höllinni í Vestmannaeyjum á föstudagskvöldið þegar Kótilettuklúbburinn hélt sitt árlega góðgerðarkvöld. Aldrei hafa fleiri sótt viðburðinn en alls mættu 350 gestir til að njóta gómsætra kótiletta, fjölbreyttrar skemmtunar og góðrar samveru. Kvöldið heppnaðist í alla staði vel og var ekki síður ánægjulegt að láta gott af sér leiða. Að þessu sinni hlutu Hollvinasamtök Hraunbúða og Krabbavörn í Eyjum styrki, en bæði félögin sinna mikilvægu starfi í samfélaginu.
Þeir félagar Pétur Steingrímsson, fyrrverandi lögreglumaður, og Gunnar Gunnarsson, meistarakokkur hjá Einsa kalda hafa staðið að kótilettukvöldunum frá upphafi. Með dyggri aðstoð góðs fólks hefur þeim tekist að skapa viðburð sem á sér fastan sess í félagslífi Eyjamanna. Vinsældirnar hafa aukist jafnt og þétt. Fyrir tveimur árum mættu 320 gestir, í fyrra voru þeir 322 og nú var metið slegið þegar 350 manns fylltu Höllina.
Eins og vera ber voru kóteletturnar í aðalhlutverki á matseðlinum. Þær voru bornar fram með öllu tilheyrandi, grænum baunum, rauðkáli og sultu. Í eftirrétt var svo gamli góði Royal-búðingurinn með karamellubragði, sem eflaust vakti ljúfar minningar hjá mörgum.
Skemmtiatriðin voru fjölbreytt og ekki af verri endanum. Sigurgeir Jónsson sló í gegn þegar hann las eigin smásögu, Sæðisprufan, sem vakti mikla kátínu meðal gesta.
Leynigestur kvöldsins reyndist vera Elísabet Halldóra Einarsdóttir, sem steig á svið með harmonikkuna og lék af mikilli snilld við góðar undirtektir. Sæmdarhjónin Arnór og Helga stigu einnig á svið með skemmtidagskrá sem gladdi viðstadda.
Kótilettubandið stóð svo sannarlega undir nafni og hélt uppi fjörinu af miklum krafti. Hljómsveitina skipa þeir Þröstur Jóhannsson, Dúni Geirs, Birgir Nilsen, Páll Kristinsson, Þórarinn Ólason og Kári Helgason. Þeir félagar léku af snilld og sýndu enn á ný hversu öflugir tónlistarmenn eru í Eyjum. Arnór kom einnig fram sem gestasöngvari með hljómsveitinni og flutti lagið Locomotive Breath með Jethro Tull, sem var í miklu uppáhaldi hjá Jóa Listó. Flutningurinn var tileinkaður minningu hans og setti fallegan svip á kvöldið.
Stjáni á Emmunni lét heldur ekki sitt eftir liggja og bauð upp á óvenjulegan búnað fyrir karlpeninginn sem gæti komið sér vel í ljósi spádóma veðurfræðinga um kaldan vetur. Þar var á ferðinni sérprjónuð hlíf utan um viðkvæmustu líkamshluta karla, sem vakti mikinn hlátur og fór á metfé. Ekki veitir víst af að vera vel búinn undir vetrarkuldann!
Þótt maturinn og skemmtunin skipi stóran sess er tilgangur kótilettukvöldsins fyrst og fremst að láta gott af sér leiða. Þar liggur styrkur þessa framtaks. Fólk kemur saman, skemmtir sér og styður um leið við mikilvægt starf í heimabyggð.
Kótilettukvöldið er fallegt dæmi um þann kraft og samstöðu sem einkennir samfélagið í Vestmannaeyjum. Hugmynd sem tveir félagar hrintu af stað hefur vaxið í stóran árlegan viðburð þar sem gleði, vinátta og góðgerðarstarf fara saman. Pétur, Gunni og allir þeir sem leggja hönd á plóg eiga þakkir skildar fyrir að halda þessu einstaka framtaki gangandi ár eftir ár.
Miðað við metmætinguna í ár er ljóst að Eyjamenn kunna vel að meta góðar kótilettur, skemmtilegan félagsskap og tækifæri til að láta gott af sér leiða. Kvöldstund sem yljar um hjartarætur og verður lengi í minnum höfð.


