Hekla bætti eigið met og varð efst kvenna
Hekla Hannesdóttir hljóp 35 hringi í bakgarðshlaupinu og bætti eigið met

Eyjakonan Hekla Hannesdóttir stóð sig vel í landsliðakeppni í Bakgarðshlaupi sem fram fór í Elliðaárdal um helgina og stendur enn yfir. Hekla lauk keppni eftir 35 hringi og bætti þar með sinn besta árangur um tvo hringi. Eyjamaðurinn Friðrik Benediktsson var einnig hluti af íslenska landsliðinu og tók þátt í hlaupinu.

Hekla var jafnframt sú kona í íslenska landsliðinu sem fór lengst í keppninni.

Foreldrar Heklu eru þau Hrund Óskarsdóttir og Hannes Vilhjálmson.

Í bakgarðshlaupi leggja keppendur af stað í 6,7 kílómetra hring á hverri klukkustund og þurfa að vera komnir í mark áður en næsti hringur hefst. Keppnin heldur þannig áfram þar til hlauparar hætta eða ná ekki að ljúka hring innan klukkustundarinnar.

Hekla hafði fyrir keppnina lengst hlaupið 33 hringi í bakgarðshlaupi en náði nú 35 hringjum. Það jafngildir um 234,5 kílómetrum á 35 klukkustundum.

Hekla og Friðrik voru á meðal fimmtán hlaupara sem skipuðu íslenska landsliðið í keppninni. Liðið keppir við landslið víða um heim en samanlagður fjöldi hringja liðsmanna ræður árangri hverrar þjóðar í landsliðakeppninni.

Nýjustu fréttir

Ólöf Ragnarsdóttir, fréttakona á RÚV 
Hekla bætti eigið met og varð efst kvenna
Vilja taka upp daggjald í Frístund
Vikan í Eyjum: Ólögmætar uppsagnir, óveður og góðgerð í fullri Höll
Bleik messa í Landakirkju
Seinni ferðir Herjólfs falla niður vegna veðurs og sjólags
„Vestmannaeyjar eru hluti af Suðurkjördæmi alla daga ársins“
Locomotive Breath flutt til heiðurs Jóa Listó
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.