Ísland vann stórsigur á Úkraínu í undankeppni EM
Mynd/HSÍ

Íslenska karlalandsliðið í handbolta hóf leik sinn í undankeppni Evrópumótsins 2028 með sannfærandi 48–26 sigri á Úkraínu í Laugardalshöll í kvöld.

Íslenska liðið hafði mikla yfirburði frá upphafi og leiddu með 14 marka mun í hálfleik, 23–9. Munurinn hélt áfram að aukast í síðari hálfleik og var kominn í 20 mörk þegar stundarfjórðungur var eftir. Að lokum vann íslenska liðið öruggan 22 marka sigur, 48–26.

Elliði Snær Viðarsson skoraði tvö mörk fyrir Ísland og komu bæði mörkin í síðari hálfleik. Ómar Ingi Magnússon, Reynir Þór Stefánsson og Bjarki Már Elísson voru markahæstir hjá íslenska liðinu með sex mörk hver.

Næsti leikur Íslands í undankeppninni er gegn Eistlandi í Tallinn sunnudaginn 8. nóvember klukkan 16:00. Leikurinn verður sýndur í beinni útsendingu á RÚV 2.

Nýjustu fréttir

Ísland vann stórsigur á Úkraínu í undankeppni EM
Blásið til hausttónleika
Leggja til aukaferju með Herjólfi á sumrin
Hörgeyrargarður og ábyrgð okkar gagnvart framtíðinni
Elliði Snær og félagar mæta Úkraínu í kvöld
Bæjarstjórn fundar í dag – bein útsending
Kvöldopnun með afsláttum og uppákomum
Erfitt vor en sterkt sumar hjá Herjólfi
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.