Vestmannaeyjabær leggur sex milljónir í hlutafjáraukningu í Eyjagöngum
Frá kjarnaborun vegna rannsókna á mögulegum jarðgöngum milli lands og Eyja. Alls voru boraðar tvær kjarnaholur. Skjáskot úr myndbandi Halldórs B. Halldórssonar

Bæjarstjórn Vestmannaeyja samþykkti samhljóða 4. nóvember sex milljóna króna viðauka við fjárhagsáætlun ársins 2026 vegna hlutafjáraukningar í Eyjagöngum. Framlagið er liður í að ljúka fjármögnun rannsóknarvinnu sumarsins vegna mögulegra jarðganga milli lands og Eyja.

Eyjagöng óskuðu eftir því að núverandi hluthafar ykju hlut sinn um 20 prósent á sama gengi og áður, einni krónu á hlut. Bæjarráð samþykkti samhljóða að bærinn tæki þátt í hlutafjáraukningunni. Framlagið verður fjármagnað með handbæru fé bæjarins.

Íris Róbertsdóttir bæjarstjóri segir á vef Vestmannaeyjabæjar að bærinn hafi frá upphafi lagt áherslu á að styðja við rannsóknirnar svo traust gögn lægju fyrir.

„Með áframhaldandi þátttöku styður Vestmannaeyjabær við að ljúka þeirri mikilvægu rannsóknarvinnu sem er forsenda þess að hægt sé að taka upplýstar ákvarðanir um framhald verkefnisins,“ segir Íris.

Vettvangsrannsóknum lokið

Í bréfi Haraldar Pálssonar, framkvæmdastjóra Eyjaganga, til hluthafa kemur fram að vettvangsrannsóknum sé lokið. Tvær kjarnaholur hafa verið boraðar og hafbotnsmælingar ná yfir um 282 kílómetra. Samstarfsyfirlýsing var undirrituð 2. september við innviðaráðherra fyrir hönd ríkisins.

Samkvæmt bréfinu vinnur ÍSOR úr gögnum botnmælinganna í vetur. Í kjölfarið vinna Efla, Völuberg og Norconsult að fýsileika- og kostnaðarmati. Íslandsbanki og Landsbankinn vinna að arðsemisgreiningum. Niðurstaðna er að vænta undir lok árs 2026 eða í byrjun árs 2027.

Nýjustu fréttir

Vestmannaeyjabær leggur sex milljónir í hlutafjáraukningu í Eyjagöngum
Skálað og skrafað í Miðstöðinni – myndir
Eyjakonur vilja halda í við topplið Hauka
Glæsileg söngveisla þriggja kóra í Eyjum
Þoka hér en ekki þar
Þakkir frá Krabbavörn Vestmannaeyja
Deloitte tekur við endurskoðun Vestmannaeyjabæjar
Prjónuðu 83 húfur gegn einelti
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.