Úrslitakvöld Vöruhúsdeildarinnar í pílukasti fer fram í Höllinni í Vestmannaeyjum á morgun, laugardag, þar sem fjórir keppendur berjast um sæti í sjálfum úrslitaleiknum.
Í undanúrslitunum mætast Ívar Skæringur Vignisson og Sindri Sigfússon annars vegar og Ólafur Birgir Georgsson og Guðmundur Tómas Sigfússon hins vegar. Sigurvegarar leikjanna mætast síðan í úrslitaleiknum þar sem keppt verður um bikarinn.
Húsið opnar klukkan 18:00 og fyrsti leikur hefst klukkan 19:30.
Jarl Sigurgeirsson sér um tónlistaratriði á sviðinu áður en keppni hefst og leikur á gítar á milli leikja. Þá verður Vöruhúsið með veitingasölu og Happy hour á jólabjór frá klukkan 18:00 til 19:00.
Aðgangur er ókeypis og allir velkomnir, segir í tilkynningu frá Pílufélagi Vestmannaeyja.