Framboðslisti Samfylkingarinnar í Suðurkjördæmi fyrir alþingiskosningarnar 25. september 2021 var samþykktur með yfirgnæfandi meirihluta á fundi kjördæmisráðs Samfylkingarinnar í kvöld.
Oddný Harðardóttir þingmaður Samfylkingarinnar í Suðurkjördæmi, þingflokksformaður og fyrrverandi fjármálaráðherra leiðir listann, í öðru sæti er Viktor Stefán Pálsson, sviðsstjóri hjá Matvælastofnun og formaður Ungmennafélags Selfoss, þriðja sætið skipar Guðný Birna Guðmundsdóttir hjúkrunarstjóri heimahjúkrunar hjá Reykjavíkurborg, bæjarfulltrúi í Reykjanesbæ, hjúkrunarfræðingur og MBA nemi, í fjórða sæti er svo Inger Erla Thomsen stjórnmálafræðinemi úr Grímsnesinu og fimmta sætið skipar formaður bæjarráðs í Reykjanesbæ Friðjón Einarsson.
Eysteinn Eyjólfsson, formaður Öldungaráðs Suðurnesja og fyrrverandi útsölustjóri ÁTVR, skipar heiðurssæti á lista Samfylkingarinnar í Suðurkjördæmi. Þessi sterki listi er skipaður fólki með fjölbreyttan bakgrunn sem á það sameiginlega að vilja vinna að samfélagi sem hugar vel að öllum sínum íbúum með öruggum grunnstoðum og öflugu atvinnulífi.
„Ég leiði lista Samfylkingarinnar í Suðurkjördæmi með stolti inn í þessar kosningar, þetta er öflugur hópur. Það eru fjölmörg tækifæri framundan í uppbyggingu eftir heimsfaraldur og sýn okkar er skýr í þeim efnum. Ríkisstjórnin og stjórnarflokkarnir hafa brugðist og ekki staðið með fólkinu í kjördæminu sem bera þyngstu byrðarnar í heimsfaraldrinum. Nú þurfum við allar hendur á dekk svo ný ríkisstjórn eftir kosningar verði leidd af jafnaðarmönnum.”
– Oddný Harðardóttir
| Sæti | Nafn | Heimili | Starf |
| 1 | Oddný G. Harðardóttir | Suðurnesjabær | Þingmaður Samfylkingarinnar, þingflokksformaður, fyrrverandi bæjarstjóri í Garði og fyrrverandi fjármálaráðherra. |
| 2 | Viktor Stefán Pálsson | Árborg | Sviðsstjóri hjá Matvælastofnun og formaður Ungmennafélags Selfoss |
| 3 | Guðný Birna Guðmundsdóttir | Reykjanesbær | Hjúkrunarstjóri heimahjúkrunar hjá Reykjavíkurborg, bæjarfulltrúi í Reykjanesbæ, hjúkrunarfræðingur og MBA nemi |
| 4 | Inger Erla Thomsen | Grímsnes | Stjórnmálafræðinemi |
| 5 | Friðjón Einarsson | Reykjanesbær | Formaður bæjarráðs Reykjanesbæjar |
| 6 | Anton Örn Eggertsson | Vestmannaeyjar | Meðeigandi í Pítsugerðinni og yfirkokkur hjá veitingastaðnum Gott |
| 7 | Margrét Sturlaugsdóttir | Reykjanesbær | Atvinnulaus fyrrverandi flugfreyja Icelandair |
| 8 | Davíð Kristjánsson | Árborg | Vélvirki hjá Veitum |
| 9 | Siggeir Fannar Ævarsson | Grindavik | Framkvæmdastjóri |
| 10 | Elín Björg Jónsdóttir | Þorlákshöfn | Fyrrverandi formaður BSRB |
| 11 | Óðinn Hilmisson | Vogar | Húsasmíðameistari, kennaranám iðnmeistara, tónlistarmaður og rithöfundur |
| 12 | Guðrún Ingimundardóttir | Höfn í Hornafirði | Vinnur við umönnun og er eftirlaunaþegi |
| 13 | Hrafn Óskar Oddsson | Vestmannaeyjar | Sjómaður |
| 14 | Hildur Tryggvadóttir | Hvolsvelli | Sjúkraliði og nemi í Leikskólafræði við Háskóla Ísland |
| 15 | Fríða Stefánsdóttir | Suðurnesjabær | Formaður bæjarráðs í Suðurnesjabæ og deildarstjóri í Sandgerðisskóla |
| 16 | Hafþór Ingi Ragnarsson | Hrunamannahreppi | 6. árs læknanemi og aðstoðarlæknir á bráðamóttöku HSu |
| 17 | Sigurrós Antonsdóttir | Reykjanesbær | Hársnyrtimeistari, atvinnurekandi og kennari |
| 18 | Gunnar Karl Ólafsson | Árborg | Sérfræðingur á kjarasviði – Báran, stéttarfélag |
| 19 | Soffía Sigurðardóttir | Árborg | Markþjálfi |
| 20 | Eyjólfur Eysteinsson | Reykjanesbær | Formaður Öldungaráðs Suðurnesja og fyrrv. útsölustjóri ÁTVR |





















Skráðu þig á fáðu nýjustu tilkynningar fyrst