Áhersla lögð á ýsuveiði
Vestmannaey VE á siglingu. Eyjafréttir/Eyjar.net: TMS

Bergur VE kom til löndunar í Neskaupstað í gærmorgun og í kjölfarið kom Vestmannaey VE. Afli skipanna var mestmegnis ýsa en einnig dálítill þorskur. Jón Valgeirsson, skipstjóri á Bergi, segir að veitt hafi verið út af Austfjörðum í fínasta veðri. „Við byrjuðum á Glettingi og fengum þar ágætt af ýsu. Síðan var haldið á Gerpsiflak og þar fékkst ýsa blönduð þorski. Við restuðum síðan á Breiðdalsgrunni og við Hvalbakinn,” segir Jón í samtali við heimasíðu Síldarvinnslunnar.

Birgir Þór Sverrisson, skipstjóri á Vestmannaey, hafði svipaða sögu að segja. „Við byrjuðum á Gerpisflaki, síðan var haldið á Skrúðsgrunn og loks var endað við Bæli karlsins og á Hvalbaksgrunni,” segir Birgir Þór. Skipstjórarnir gera ráð fyrir að veitt verði áfram á Austfjarðamiðum og veruleg áhersla verði lögð á ýsuveiði.

Nýjustu fréttir

Elliði Snær markahæstur gegn Svíum
Laxey á Seafood Expo North America
Trúin og andlegt starf styrkur í sorginni
Heimir heldur áfram með Írland – samningur til 2028
Vatn loksins farið að renna í laugina
Eyjalistinn tilbúinn – Miðflokkurinn kynnir sinn lista í kvöld
Norlandair með lægsta tilboð í flug til Eyja
„Hörkufiskirí”
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.