Við ho�?fum aldrei verið neitt annað en ánægð með leikskólamálin hér í bæ og ho�?fum við verið með fjo�?gur bo�?rn í leikskóla hér í Eyjum. Ég hef bara sætt mig við það að bo�?rnin mín komist ekki inn á leikskóla fyrr en á milli 18 mánaða og tveggja ára, það hefur ekki komið að so�?k hjá okkur þar sem ég hef to�?k á því að vera heima. En ég skil mjo�?g vel fólk þar sem báðir aðilar þurfa að komast út á vinnumarkaðinn sem fyrst að vera ósáttir eftir bið eftir leikskólaplássi. Ef ég ætti að setja út á eitthvað þá væri það sennilegast bílastæðimálin fyrir utan leikskólann Kirkjugerði. �?að getur ekki kostað bæinn aleiguna að rífa upp þennan grasflo�?t sem er þarna við og fjo�?lga bílastæðunu. Eini tilgangurinn sem hann hefur þarna er að hýsa jólatré í rúman mánuð. �?arna myndast mikill umferðahnútur á háanna tímum.
Í síðasta tölublaði Eyjafrétta var rætt við yngri kynslóðina um bæjarmálin í Eyjum. Hægt er að lesa viðtalið við Huldu Birgisdóttur í heild sinni ásamt skoðunum annarra ungra Eyjamanna um hin ýmsu bæjarmál í nýjasta blaðinu. Ef þú ert ekki áskrifandi nú þegar, er hægt að gerast áskrifandi
hér.