Vegagerðin hættir við útboð

Vegagerðin hefur hætt við útboð á lagningu Gjábakkavegar, milli Þingvalla og Laugarvatns. Farist hefur fyrir að gera nauðsynlegar breytingar á aðalskipulagi Bláskógabyggðar en þar er ekki gert ráð fyrir veginum eins og hann hefur verið áætlaður. (meira…)

Lögreglan telur öryggi sínu og íbúa ógnað

„Verulega er vegið að öryggi íbúa Árnessýslu og annarra sem leið eiga um sýsluna, svo og lögreglumanna sem starfa við embætti Sýslumannsins á Selfossi, vegna ófullnægjandi fjárveitingar til embættisins, þetta segir m.a. í ályktun sem Lögreglufélag Suðurlands samþykkti á félagsfundi í síðustu viku. Hefur þegar orðið nokkur niðurskurður vegna þessa og er nú svo komið […]

Íslandsmet í athugasemdum

Íslandsmet athugasemda vegna virkjunarframkvæmda hefur verið slegið. Skipulagsstofnun höfðu á þriðjudag borist alls fjögur hundruð og tíu athugasemdir vegna Bitruvirkjunar, sem fyrirhugað er að reisa á Hengilssvæðinu. Frestur til athugasemda rennur út á morgun, föstudag. (meira…)

Norræna bókasafnsvikan 2007

Norræna bókasafnsvikan verður haldin 12-18. nóvember. Yfirskrift bókasafnsvikunnar að þessu sinni er “Konan í norðri” sem t.a.m vísar til norrænna kvenkynsrithöfunda. Bókasafn Vestmannaeyja er, sem fyrr, þátttakandi í hátíðinni. Boðið verður upp á fjölbreytta dagskrá í safninu sem auglýst verður í bæjarblöðunum. (meira…)

Dvalarheimilið Lundur 30 ára

Ný hjúkrunarálma og sólstofa við Dvalarheimilið Lund á Hellu eru á teikniborðinu, sagði Drífa Hjartardóttir, formanns stjórnar Lundar, í hátíðarræðu á þrjátíu ára afmæli stofnunarinnar síðastliðinn laugardag. Á þriðja hundrað manns mættu í veisluna. (meira…)

Aukin þjónusta við hestamenn

Bryndís Arnardóttir, hestakona og íþróttakennari, opnar um miðjan næsta mánuð nýja þjónustu við hestamenn á Selfossi. Hægt verður að leigja bás í hesthúsi Bryndísar og mun hún alfarið hugsa um þá hesta sem þar eru. (meira…)

Jól í skókassa:

Stór hluti af undirbúningi jólanna felst í því að gefa með sér og gefa þeim sem minna mega sín. Allir nemendur í 1. – 7. bekk Grunnskólans á Hellu tóku þátt í verkefninu Jól í skókassa á vegum KFUM og K með aðstoð umsjónarkennara og foreldrabekkjartengla. Nemendur skólans skiluðu samtals inn 125 kössum sem munu […]

Svið og hákarl og Johnsensöngur

Sl. föstudag gerðu starfsmenn á Litla-Hrauni sér glaðan dag á árlegri Sviðamessu. Komið var saman í Hliðskjálf, félagsheimili hestamannafélagsins Sleipnis á Selfossi. Á borðum voru að sjálfsögðu svið bæði heit og köld með viðeigandi meðlæti. (meira…)

Stórsveit Suðurlands ásamt Kristjönu og Guðlaugu

Næstu tónleikar Tóna við hafið verða miðvikudaginn 14. nóvember. Fram koma Stórsveit Suðurlands ásamt tveimur af bestu jazzsöngkonum landsins, þeim Kristjönu Stefánsdóttur og Guðlaugu Dröfn Ólafsdóttur. Stórsveit Suðurlands er fullskipuð stórsveit og var stofnuð árið 2006. (meira…)

�?rjátíu ára útibúsafmæli

Fólk úr viðskipta- og atvinnulífinu fjölmennti í afmælisveislu útibús Glitnis á Selfossi síðastliðinn föstudag. Þrjátíu ár eru liðin frá því bankaútibú var opnað að Austurvegi 38. (meira…)

Nemendafélag FÍV og eyjar.net í samstarf

Fyrr í þessari viku var undirritað samkomulag milli Nemendafélags Framhaldsskólans í Vestmannaeyjum og 24seven ehf rekstraraðila www.eyjar.net um samstarf þeirra á milli.Samstarfið felur það í sér að www.eyjar.net verða einn af styrktaraðilum nemendafélagsins í vetur og mun hýsa síðu nemendafélagsins á slóðinni www.eyjar.net/nemo Nemendafélagið hefur opnað vefsíðu á slóðinni www.eyjar.net/nemo þar sem hægt er að […]

Gott skref hjá bæjaryfirvöldum og Vinnslustöðinni

Fréttatilkynning bæjaryfirvalda og Vinnslustöðvarinnar um áhuga þeirra á að taka þátt í forvali vegna reksturs Bakkafjöruferju kom mér skemmtilega á óvart. Frábært ef sú yrði raunin að innanbæjarfyrirtæki tæki að sér reksturinn. Þetta er það sem þarf að gera. Berjast fyrir forræði yfir samgöngumálum okkar. (meira…)

Umfjöllun um nýju Biblíuþýðinguna

Fimmtudaginn 8. nóvember kl. 18 mun Sr. Baldur Kristjánsson ræða um nýju Biblíuþýðinguna á Bæjarbókasafni Ölfuss í Þorlákshöfn (meira…)

Ófært hefði verið í fjóra daga það sem af er ári.

Mikil umræða hefur verið í bloggheimum að undanförnu um ölduhæð við Bakkfjöru og þær niðurstöður sem að öldudufl sem þar er staðsett sýnir. Halda sumir fram að allt að 40-50 dagar á ári verði ófærir til siglinga á milli Bakka og Eyja með nýrri ferju. Viðmiðunarmörk fyrir siglingar á þessari leið eru 3.40 m að […]

Hjalti Jónsson í nýrri þáttaröð í Danska Ríkissjónvarpinu DR1

Sálfræðingurinn Hjalti Jónsson skipar stóran sess í nýrri þáttaröð sem hefst í Danska Ríkissjónvarpinu á morgun og verða þættirnir sýndir á DR 1. Í þessum þáttum mun Hjalti ásamt tveimur öðrum meðferðaraðilum meðhöndla sjúklinga með einkenni áráttu-þráhyggju röskunar. Fyrsti þátturinn verður sýndur á morgun fimmtudag á DR 1 kl 20:30 að dönskum tíma en 19:30 […]

Viðutan vínvargur

Andri Eyvindsson, einn af þremur meðleigjendum mínum, getur stundum verið svolítið utan við sig. “Stundum” og “svolítið” er reyndar vægt til orða tekið. Svo utan gáttar getur hann verið að hann er annálaður hvert sem hann fer fyrir viðutanmennsku og kæruleysi.Um helgina varð okkur gert skýrt grein fyrir því að áfengi gerir Andra heldur ekkert […]

Jólin byrjuð á Burstafelli

Smákökur, jólaskreytingar, jólagjafir eða jólakort eru eitthvað eru ekki ofarlega í huga eyjamanna þessa dagana því enn eru 48 dagar til jóla og nægur tími til stefnu.  En eins og undanfarin ár taka sumir jólaskreytingarnar upp snemma upp úr kassanum og hefjast handa við að koma jólaljósunum fyrir á húsum sínum. Fyrstur í ár er […]

Atli Gíslason þingmaður á fundi á Kaffi María á fimmtudagskvöld

Fimmtudaginn 8.nóv. nk. kl. 20 heldur Vinstrihreyfingin- gr��nt framboð opinn fund á Kaffi María uppi. Atli Gíslason þingmaður Vinstri grænna í Suðurkjördæmi mætir á fundinn og ræðir við fundargesti um landsmálin og áherslur Vinstri grænna á Alþingi. Flokkurinn lagði í byrjun þings í haust fram fjölda mála sem snerta nánast alla þætti þjóðlífsins og  verður […]

Atli Gíslason þingmaður á fundi á Kaffi María á fimmtudagskvöld

Fimmtudaginn 8.nóv. nk. kl. 20 heldur Vinstrihreyfingin- grænt framboð opinn fund á Kaffi María uppi. Atli Gíslason þingmaður Vinstri grænna í Suðurkjördæmi mætir á fundinn og ræðir við fundargesti um landsmálin og áherslur Vinstri grænna á Alþingi. Flokkurinn lagði í byrjun þings í haust fram fjölda mála sem snerta nánast alla þætti þjóðlífsins og verður […]

Foreldrar hittist og ræði málin

Reynsla okkar hjá Heimili og skóla – landssamtökum foreldra er sú að úti í þjóðfélaginu sé stærsti hluti foreldra fylgjandi því að halda vel utan um börnin sín, veiti þeim hlýju og sýni þeim virðingu. Ef foreldrar hittast og tala saman eru meiri líkur á því að þeir standi saman um mikilvæg uppeldisleg atriði. Þannig […]

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.