Tilboð opnuð vegna lengingar Litlagerðis
Tilboð í jarðvinnu og frágang á lögnum vegna lengingu Litlagerðis voru opnuð fimmtudaginn 27. september. Tvö tilboð bárust og eru þau eftirfarandi ásamt kostnaðaráætlun. Kostnaðaráætlun 21.730.350 100.00%Gröfuþjónusta Brinks 22.011.957 101.30%Íslenska Gámafélagið 19.939.737 91.75% (meira…)
Við rannsókn bárust böndin að erlendum ríkisborgara
„Við rannsókn bárust böndin að erlendum ríkisborgara” 23. september sögðu fjölmiðlar sagt frá því að kona í Vestmannaeyjum hafi kært nauðgun til lögreglunar. Frásögnin hefur verið með sama sniði í þeim flestum, sem dæmi segir á Mbl.is: „Við rannsókn málsins bárust böndin að erlendum ríkisborgara og var hann handtekinn að kvöldi sama dags af lögreglunni […]
Hemmi skoraði fyrir Portsmouth
Íslendingaslagur Portsmouth og Reading í ensku úrvalsdeildinni í dag var ævintýri líkastur en alls voru skoruð 11 mörk í leiknum. Það voru heimamenn sem fögnuðu sigri 7-4. Framherjinn skæði Benjani skoraði þrennu í leiknum en tvö mörk frá honum virtust hafa komið heimamönnum algjörlega í bílstjórasætið í leiknum. Stephen Hunt minnkaði muninn fyrir Reading og […]
Framtíð Sparisjóðs Vestmannaeyja.

Í Morgunblaðinu í gær laugardag var auglýst eftir seljendum að stofnfé í Sparisjóði Vestmannaeyja. Sparisjóðir landsins eru að ganga í gegnum miklar breytingar, sumum sparisjóðum hefur verið breytt í hlutafélög og aðrir hafa sameinast í stærri einingar. Hver er staða Sparisjóðs Vestmannaeyja?Vikublaðið Vaktin skýrði frá því rétt fyrir verslunarmannahelgina síðustu að fjársterkir aðilar væri að […]
Dóra Dúna Sighvatsdóttir tilnefnd fyrir besta menningarlega framtalið í Danmörku

Á Norrebro í Kaupmannahöfn er bar sem ber heitið Jolenbar og hefur þessi bar frá opnun verið með vinsælustu stöðum Kaupmannahafnar. Annar eiganda staðarins er Dóra Dúna Sighvatsdóttir en hún er dóttir Sighvatar Bjarnasonar fyrrverandi framkvæmdastjóra Vinnslustöðvarinnar. Dóra rekur staðinn ásamt vinkonu sinni Dóru Takefusa og sagði Dóra Dúna í samtali við Sviðljós mbl.is að […]
Hermann skoraði í miklum markaleik Íslendingaliðanna

Í dag mættust í ensku úrvalsdeildinni Portsmouth og Reading en í báðum liðum má finna fyrrum leikmenn ÍBV, þá Hermann Hreiðarsson í Portsmouth og Ívar Ingimarsson í Reading. Úr varð mikil markasúpa og lokatölur urðu hvorki meira né minna en 7:4, hreint ótrúlegur leikur. Hermann Hreiðarsson skoraði eitt marka sinna manna. (meira…)
Mars on Earth vísindaþáttur

Á myndbandavefnum www.youtube.com er að finna myndband sem að vísindamenn NASA gerðu á Surtsey. Þátturinn ber heitir Mars á jörðinni og er verið að reyna að finna svipuð einkenni á jörðinni og á mars. Þáttinn má finna hér: http://youtube.com/watch?v=Vfx5-Bbfk_4 (meira…)
Afmælismyndir á Suðurland.is

Myndir frá 60 ára afmæli Selfossbæjar eru komnar inn á ljósmyndasíðu Suðurland.is. Sjá myndir. (meira…)
Kjaftfullt á kvöldvöku!

Nemendafélag Fjölbrautaskóla Suðurlands stóð fyrir fjölmennri kvöldvöku í sal skólans í síðustu viku. Sjá myndir. (meira…)
Guðrúnu VE lagt vegna niðurskurðar þorskkvóta

Útgerð Péturseyjar ehf. hefur ákveðið að leggja línubátnum Guðrúnu VE. Þriggja mánaða uppsagnafrestur áhafnarinnar rann út á dögunum og mun báturinn því ekki halda til veiða í vetur. Guðjón Rögnvaldsson, eigandi útgerðarinnar segir ástæðuna einfalda, niðurskurður í þorskkvóta geri það að verkum að ekki sé unnt að gera bátinn út. „Við erum reyndar ekki með […]
Atli til Enköping til reynslu

Atli Heimisson, framherji ÍBV er á leið til sænska 1. deildarliðsins Enköping til reynslu. Atli mun halda utan eftir viku og vera hjá sænska liðinu í tíu daga. Atli kom til ÍBV frá Aftureldingu og var markahæstur eftir sumarið með ellefu mörk, átta í Íslandsmótinu og þrjú í bikarkeppninni. (meira…)
Atli Heimisson til Enköping á reynslu

Atli Heimisson framherji ÍBV er á leið til sænska 1.deildarliðsins Enköping á reynslu en þetta staðfesti hann við fótbolta.net í gær. Atli mun halda utan eftir viku eða sjötta október og vera hjá sænska liðinu í tíu daga. Atli kom til ÍBV frá Aftureldingu í byrjun sumars og lék vel með Eyjamönnum í fyrstu deildinni […]
Stofnfé í Sparisjóði Vestmannaeyja óskast til kaups

Í Morgunblaðinu í dag er auglýsing þar sem óskað er eftir því að kaupa stofnfé í Sparisjóði Vestmannaeyja. Fyrr í sumar birti Vaktin vikublað frétt um að fjársterkir aðilar hefðu áhuga að eignast stofnfé í sparisjóðnum. Síðustu mánuði hefur orðið mikil breyting hjá sparisjóðum í kringum landið, sumum hefur verið breytt í hlutafélag og aðrir […]
Ókeypis skólaganga

Fólk sem greiðir tekjuskatt til sveitarfélagsins er í leiðinni að borga hluta af þessari milljón sem kostar fyrir sveitarfélögin að mennta barn yfir árið. Er sanngjarnt að sumir borgi ekkert fyrir skólagöngu barnsins síns ? Þeir sem borga einungis fjármagnstekjuskatt, en ekki tekjuskatt, þeir greiða ekkert í útsvar til sveitarfélagsins. Því eru þeir ekki að […]
Ian Jeffs valinn bestur hjá ÍBV

Í kvöld var sumarlokahóf ÍBV-íþróttafélags en þar fagna félagsmenn sumarlokum. Hápunktur kvöldsins er að sjálfsögðu verðlaunaafhendingin en þar var Ian Jeffs valinn besti leikmaður liðsins en Jeffs kom til ÍBV um mitt sumar og frískaði heldur betur upp á leik liðsins. Þá fengu þau Arnór Eyvar Ólafsson og Hafdís Guðnadóttir Fréttabikarana sem eru veittir þeim […]
Eyjamenn fögnuðu sigri en sitja eftir með sárt ennið

Eyjamenn sitja eftir með sárt ennið í 1. deild og sjá á eftir Fjölni, Þrótti og Grindavík upp þrátt fyrir að hafa lagt öll þessi lið að velli síðustu vikur. Eyjamenn unnu síðasta leik sinn í 1. deildinni með því að leggja Fjölni að velli, 4:3 í bráðskemmtilegum leik en það dugði ekki til því […]
ÍBV ekki í úrvalsdeildinni að ári

Þá er fótboltasumarið á enda og það orðið staðreynd að ÍBV verður ekki í Landsbankadeildinni að ári. Það verða Grindavík, Fjölnir og Þróttur sem fara upp um deild. ÍBV á Hásteinsvelli við Fjölnismenn sem voru fyrir leikinn öruggir upp um deild og því að litlu að keppa fyrir Fjölnismenn nema heiðurinn einn að vinna ÍBV […]
Lýst eftir lausum störfum á Suðurlandi

Vinnumálastofnun á Suðurlandi hefur lýst eftir lausum störfum á Suðurlandi og á höfuðborgarsvæðinu í kjölfar þess að 59 starfsmönnum Humarvinnslunnar í Þorlákshöfn hefur verið sagt upp störfum. Í tilkynningu frá Vinnumálastofnun á Suðurlandi segir, að atvinnuleysi hafi verið í lágmarki á þessu og síðasta ári og frekar auðvelt fyrir fólk að nálgast störf. Á heimasíðu […]
Lýst eftir lausum störfum
Vinnumálastofnun á Suðurlandi lýsir eftir lausum störfum á Suðurlandi og á höfuðborgarsvæðinu. Hvetur stofnunin fyrirtæki til þess að hafa samband við aðalskrifstofuna á Selfossi s. 480-5000 og láta vita af lausum störfum sem unnt er að benda atvinnuleitendum á. (meira…)
Ljósbrot í ískristöllum í háskýjum

Forsíðumynd Vaktarinnar tók Óskar Pétur Friðriksson. Myndin er af sérkennilegum ljósgeislum sólarinnar sem prýddu himininn í stutta stund á þriðjudag. Óskar sendi Sigurði Ragnarssyni, veðurfréttamanni á Stöð 2 myndirnar og fékk greiningu á fyrirbærinu. Um er að ræða ljósbrot í ískristöllum í háskýjum sem verður til þess að það sé eins og geislar sólarinnar séu […]